Úrval - 01.05.1968, Blaðsíða 6
4
ÚRVAL
í Vicksburg í Mississippifylki með
Ellsworth Davis undirherforingja,
sem þá var formaður Missisippiár-
nefndarinnar, og samstarfsmenn
hans, sem verið höfðu á ráðstefnu
í St. Louis. Það rigndi svolít-
ið á flugvellinum í St. Louis,
svo að skyggnið var ekki
mjög gott. Veðurstofan skýrði
frá því, að skýjahæðin væri lág og
loft svolítið ókyrrt, en þó ekki
neitt að ráði. Þeir máttu eiga von
á þrumustormum hér og þar á
leiðinni til Vicksburg. En Clesi
hafði ekki miklar áhyggjur af
veðrinu, því að flugvélin var búin
allra nýjustu rafeinadastjórntækj-
um og hann var þaulvanur að
fljúga í slæmu skyggni með hjálp
tækjanna einna.
Klukkan 7,55 gaf flugturninn
flugvélinni Grumman N2965 leyfi
til flugtaks. Þegar Bud lét hana
renna léttilega upp í loftið og
stefndi í suðurátt í þessa 450 mílna
löngu flugferð, sagði hann við Bob
Pierce: „Það er að verða svolítið
ónotalegt þarna framundan. Við
skulum hafa ratsjána í stöðugu
sambandi."
Næstum tveim tímum áður en
Bud lagði af stað frá St. Louis,
greip ungur kaupsýslumaður í
suðurhluta Missisippisfylkis* kaffi-
brúsa, kvaddi konuna sína með
kossi og hóf sig til flugs í flugvél-
inni sinni frá haglendi á bak við
húsið sitt. Þetta var eins hreyfils
* Nafni hans er haldið leyndu sam-
kvæmt beiðni hans.
Cessna 170B. Hann ætlaði sér að
fljúga 775 mílna leið til Chicago
til þess að sækja þar kaupsýslu-
þing. Hann hafði í hyggju að stanza
einu sinni á leiðinni til þess að taka
bensín, á litlum flugvelli 85 mílum
fyrir norðan Memphis. Veðurspárn-
ar skýrðu frá dreifðum skýjum á
leiðinni, en samt ekki slíkum skýja-
þykknum, að hann gæti ekki sveigt
hjá þeim. Hann var ekki þjálfaður
í að fljúga með hjálp tækja einna,
og því var honum bannað sam-
kvæmt reglum Flugmálaráðsins að
fljúga í skýjum eða gegnum þau.
Það leit út fyrir, að þetta mundi
verða ósköp venjuleg flugferð.
Leyfisnúmer flugvélarinnar hafði
verið stytt í „48 Chariie" til notk-
unar í fjarskiptum. Hún flaug
ósköp rólega áfram á 125 mílna
hraða. Kaupsýslumaðurinn fékk
sér svolítinn kaffisopa úr brúsan-
um og dáðist að landslaginu. Flug-
vallarstarfsmenn í Jackson í Missis-
sippifylki skýrðu frá „dreifðum
skýjum“. En flugvallarstarfsmenn
í Greenwood í sama fylki tilkynntu,
að loft væri „skýjað“. Regn og þétt-
ari ský voru á suðurleið í áttina
til Memphis.
„48 Charlie" flaug yfir Green-
wood i 5(000 feta hæð. Flugmaður-
inn hækkaði smám saman flugið
til þess að komast upp fyrir skýja-
þykkni, sem hækkuðu stöðugt.
Hann flaug yfir Memphis í 10.000
feta hæð. Þetta er álitin örugg
flughæð að degi til. Sé hún meiri,
getur súrefnisskortur haft slæm
áhrif á einbeitingu, dómgreind og
samræmingu viðbragða.
En hann varð að hækka flugið