Úrval - 01.05.1968, Blaðsíða 22
20
ÚRVAL
hallinn 1,36 m neðan frá jörð upp
að turnþaki. Hæð hans er 54 m.
Turninn hefur lengi laðað ferða-
menn til borgarinnar og allir vilja
þeir taka af honum mynd. Svo vill
til að við hann er tengd önnur saga
sem aukið hefur á frægð hans. Þjóð-
saga þessi hermir að Galileo hafi
hent niður af þakbrúninni skot-
hylki, sem vóg eitt pund, og öðru
sem vóg tíu pund, í þeim tilgangi
að prófa reglu sína um fall mis-
þungra hluta.
HVENÆR MUN TURNINN
HRYNJA?
Frá því árið 1911 hefur prófessor
einn í Písa haft á hendi mælingar
á hallanum, og tekið mið kl. 5 19.
júní ár hvert. Arið 1964 virtist bráð
hætta vofa yfir, því hallinn var
orðinn 4,8 m. Voru þá fengnir sér-
fræðingar til að gera athuganir í
klukknaklefanum, og staðfestu þær
hinn versta grun, þeir sögðu að
engu mætti muna að turninn félli,
því vatn seytlaði undir og bæri á
burt 250 gr af undirstöðunni á ári
hverju. — Hve lengi mun hann
standa fyrr en hann fellur?
Séríræðingur einn hefur sagt að
annaðhvort standi turninni eða falli,
hann geti staðið í 200 ár en hann geti
líka fallið hvenær sem er. Jafnvæg-
ið er óstöðugt. En þetta hefur ekki
valdið nema stórauknum ferða-
mannastraumi, allir vilja sjá furðu-
turninn áður en hann er allur;
snerta veggina og ganga upp í
klukkuturninn.
Árið 1964 var bannað að fara upp
í turninn, og jafnvel að nálgast
hann, og til þess að þau fyrirmæli
væru haldin, var gerð gaddavírs-
girðing í kring, og fékk enginn að
fara inn fyrir girðinguna. Hinn síð-
asti, sem upp fór, var hringjarinn,
Ennio Ghilardi, og þá var settur
þar rafmagnsútbúnaður, sem hring-
ir klukkunum án þess nokkur t-itr-
ingur verði af.
Varúðarráðstafanir hafa verið
gerðar gegn því að turninn hrynji.
T. d. er öll umferð á vélknúðum
farartækjum bönnuð í nágrenni við
turninn, og hundrað sjálfvirkar ljós-
og kvikmyndavélar eru stöðugt
viðbúnar að taka mynd af tumin-
um um leið og hann fellur.
En ekki er ítölum, og þá ekki sízt
Písabúum, neitt um það, að turn-
inn falli. Það mundi verða Písa til
mikils fjárhagstjóns, því turninn er
borginni hinn drýgsti tekjuauki. —
Svo er talið að þrjár milljónir
ferðamanna komi á ári hverju að
meðaltali til Písa og langflestir til
að skoða turninn.
Til andsvars við áskorun ítalíu-
stjórnar kom fjöldi bréfa með hin-
um margvíslegustu tillögum. Enda
var þetta ekki í fyrsta skipti sem
sérfræðingar í ýmsum löndum
reyndu að leysa þetta vandamál.
Fram að 1964 hafði stjórn Ítalíu
borizt 1300 tillögur, en öllum verið
hafnað.
Sumir hafa lagt til að turninn
skuli réttur við. En þetta hefur
ítölum ekki þótt ná nokkurri átt:
því hvað væri eftir af aðdráttarafli
turnsins ef hann stæði beinn, hver
mundi þá nenna að koma að skoða
hann?
ítalskur maður, prófessor nokkur