Úrval - 01.05.1968, Blaðsíða 125
HRÆÐILEGU MENNIRNIR TÍU . . . .
123
lögreglunnar um að verða fyrr
eða síðar einn „Hræðilegu mann-
anna tíu“, en það eru samt 250
líkur á móti 1, að slíkt takist. Sá
hinn sami verður að hafa starfað
a.m.k. tvö ár sem óbreyttur götu-
lögregluþjónn. Hann verður að
hafa reynslu í starfi rannsóknar-
lögregluþjóns, hann verður að hafa
staðizt stöðuhækkunarprófin og
sýnt algera trúmennsku og geysi-
legan áhuga í starfi sínu.
Mennirnir í Morðdeildinni verða
líka að vera færir um að útbúa
mál sin fyrir væntanleg réttar-
höld í samræmi við strangar regl-
ur, sem nefndar eru „Dómararegl-
urnar.“ Áður en grunaður maður
er ákærður, verður að vara hann
við því, að hvaðeina, sem hann
segi, kunni að verða notað gegn
honum sem sönnunargögn við rétt-
arhöldin. Og mennirnir í Morð-
deildinni verða að vera færir um
„að byggja málið svo snilldarlega
upp“, að lögfræðmgur krúnunnar
geti tekið málið til meðferðar í
réttarsalnum, án þess að hafa
kynnzt málsatvikum nokkuð áð-
ur, og að hann geti jafnframt sann-
að ákæruna svo óvéfengjanlega, að
kviðdómendur sannfærist. Því
tengja mennirnir í Morðdeildinni
hverja staðreyndina við aðra af
sömu leikni og leikinn trésmiður
neglir saman spýtur.
Prýðilegt dæmi um hinn næma
skilning meðlima Morðdeildarinn-
ar kom í ljós fyrir nokkrum árum
við rannsókn málsins „Ákafa sögu-
smettan". Eitt sinn er hinn óvið-
jafnanlegi Robert Fabian, hinn
frægi „Fabian í Yardinum“, var
að rannsaka morð, sem framið hafði
verið í vopnaðri árás á skartgripa-
verzlun, virtist ekkert ætla að
ganga. Það virtist ómögulegt að fá
vitneskju um, hver hleypt hafði
af byssunni.
Maður nokkur, Tom Brown* að
nafni, átti að baki sér heila runu
afbrota, sem lent höfðu á saka-
skrá, en hann virtist hafa algerlega
óvéfengjanlega fjarverusönnun í
þessu tilfelli. Fabian yfirheyrði ná-
unga þennan æ ofan í æ, en hann
lét engan bilbug á sér finna og var
hinn ósvífnasti. Fabian rakti mál-
ið skref fyrir skref og spurði hann
í þaula viðvíkjandi hverju smá-
atriði. Skyndilega sagði Brown:
„Ef þú hjálpar mér, þá hjálpa ég
þér. Ég er alveg saklaus í þessu
máli, en viljir þú fá einhver
greiðari svör, skaltu bara spyrja
hann Bill Smith.“ Bill Smith var
líka innbrotsþjófur.
Fabian lét sem hann heði lítinn
áhuga á tilboði þessu, en þetta varð
samt til þess að vekja forvitni
hans. Brown var atvinnuinnbrots-
þjófur og hafði aldrei sýnt það á
neinn hátt, að hann vildi aðstoða
lögregluna. Nú bauð hann skyndi-
lega fram aðstoð sína. Það hlaut
að vera einhver veigamikil ástæða
fyrir því.
Fabian rannsakaði í flýti öll þau
óupplýstu innbrot, sem þeir Smith
og Brown hefðu hugsanlega getað
tekið þátt í. Hann komst að því, að
* Málin, sem nefnd eru, eru raun-
veruleg, þótt nöfnum sumra þeirra
persóna, sem hlut eiga að máli,
hafi verið breytt.