Úrval - 01.05.1968, Blaðsíða 88
86
ÚRVAL
þessari jákvæðan þjóðfélagslegan
tilgang. Einn gagnrýnandi skrifaði
á þessa leið: „Hið fagurfræðilega
tilgangsleysi þessarar framkvæmd-
ar er mikið, en þó er hið þjóðfé-
lagsiega ábyrgðarleysi enn verra.“
Rockefeller hefði getað útskýrt það,
hefði hann óskað, að hann hefði upp-
haflega tekið á leigu 12 ekru svæði
við Fimmtu breiðgötu (á milli 48.
og 51. strætis) fyrir hönd samtaka,
sem voru að ráðgera að stofna nýtt
heimili fyrir Metropolitanóperuna,
að hinir, sem einnig stóðu að baki
þessarar áætlunar, hefðu svo dregið
sig í hlé eftir hrun verðbréfamark-
aðsins 1929 og upphaf kreppunnar
og hann stæði svo uppi með heilar
lengjur af niðurníddum, úr sér
gengnum húsum, sem hann tapaði
nú 3 milljónum dollara árlega. En
Rockefeller skeytti ekkert um þær
staðreyndir. Þess í stað varði hann
fyrirætlun sína og áætlanir arki-
tekta sinna með því að leggja á-
herzlu á trú sína á framtíð Banda-
ríkjanna.
Hann sagðist ekki aðeins vera að
reyna að skapa listrænt minnis-
merki, lieldur vildi hann, að bygg-
ingarnar væru í stíl, sem hæfði vel
þróun og endurbyggingu stórborga
nútímans, og að þær yrðu jafnframt
því mjög vel hæfar til þeirrar notk-
unar, sem þær væru ætlaðar fyrir.
Hann sagðist gera sér grein fyrir
því, að fyrirtæki þetta yrði að geta
borið sig fjárhagslega og að það
yrði að vera unnt að reka þetta með
þokkalegum hagnaði miðað við það
fjármagn, sem í þetta færi, því að
einungis með því móti gæti fram-
kvæmd þessi reynzt þýðingarmikil
sem fyrirmynd borgarskipulagning-
ar í framtíðinni og „heilbrigðrar,
efnahagslegrar þróunar stórborg-
anna“.
Hann gerði það að stefnu sinni
að eyða 5% aukalega, þ. e. í viðbót
við áætlaðan kostnað, til þess að
tryggja það, að byggingarnar yrðu
stórglæsilegar. Hann mælti þessi
orð einu sinni: „Ég gat ekki sofið
í nótt, af því að ég var svo áhyggju-
fullur út af því, hvernig ég ætti að
fá fjármagn í allt þetta.“ Það má
segja, að þetta hafi verið í næstum
eina skiptið, sem hann heyrðist
kvarta vegna þessa fyrirtækis. „Ég
hef orðið að selja hlutabréfin mín í
Standard Oil of New York fyrir
tvo dollara bréfið.“ (Þau höfðu
komizt upp í 80 dolara bréfið fyrir
verðbréf ahrunið).
GANGSTÉTTAEFTIRLITSMENN.
Rockefeller hafði sjálfur eftirlit
með byggingu Riekefellermiðstöðv-
arinnar (Rockefeller Center). Þeg-
ar hann stóð dag einn á gangstétt-
inni og virti fyrir sér risavaxna
mokstursvél, sem var að moka upp
úr einum grunninum, klappaði einn
varðmaðurinn á öxlina á honum og
sagði „Haltu áfram góði. Þú mátt
.ekki hanga hér!“ Rockefeller færði
sig úr stað, en honum líkaði þetta
ekki. Skömmu síðar lét hann setja
glugga á háu timburveggina, sem
reistir höfðu verið umhverfis bygg-
ingarsvæðið. Þannig vildi hann
veita vegfarendum og öðrum for-
vitnum horgurum tækifæri til þess
að stanza og fylgjast með vinnunni
við grunnana. Þessi hugmynd varð
svo vinsæl, að blaðafulltrúar fyrir-