Úrval - 01.05.1968, Blaðsíða 53
ÍVAR HLÚJÁRN
51
ákærð fyrir galdra á þeim forsend-
um, að ekki hafi hún aðeins læknað
ívar hlújárn með göldrum, heldur
hafi hún einnig tryllt hinn göfug-
asta Musterisriddara .... Hún er síð-
an dæmd til að vera lifandi á bál
kastað, en þó er henni gefinn kost-
ur á lífi, ef hún fái einhvern ridd-
ara, sem hún velur sér til að verja
hana í einvígi. Bróðir Gilbert er
skikkaður til að heyja einvígi af
hálfu ákæruvaldsins.
Það horfir nú ekki vel fyrir Re-
bekku. Menn eru ekki ginkeyptir
fyrir að hætta lífi sínu gegn jafn-
hræðilegum andstæðingi og bróður
Gilbert fyrir eina Gyðingsstúlku,
þótt fögur sé, en á síðustu stundu
kemur fvar hlújárn á vettvang og
býðst til að heyja einvígið fyrir
Rebekku. Þeir berjast síðan, falla
báðir, en ívar hlújárn sprettur strax
á fætur og setur sverðið á háls and-
stæðingi sínum, en hann reynist þá
steindauður og hafði þannig orðið
fórnardýr ástríðna sinna. Rebekku
var þannig bjargað frá hræðilegum
dauðdaga og hinir hjátrúarfullu á-
horfendur töldu víst, að þetta væri
dómur drottins yfir bróður Gilbert.
Og giftist svo Rebekka fvari hlú-
járni? Hafði Scott glejrmt, að hann
hafði prýtt hana hrafnsvörtum lokk-
um og dökku litarafti? Margir les-
endur höfðu svo mikið dálæti á
Rebekku, að þeir lágu höfundinum
á hálsi fyrir að haga þannig sögu
sinni, að hann lagði ekki saman
hendur Rebekku og ívars heldur
ívars og Róvenu, sem átti ekki eins
mikla samúð lesendanna. Scott hafði
gildar ástæður til að haga sögu sinni
eins og hann gerði. Miðað við þann
tíma, sem sagan gerist á var gifting
þeirra ívars og Rebekku næstum
óhugsanleg, en að auki, hugsaði höf-
undurinn sem svo, að hin dyggðum
prýdda kvinna er fremur lítillækk-
uð en upphafin með því að láta
hana hljóta laun fyrir dyggðir sínar.
Það getur svo sem vel verið, að
Scotjt hafi ekki verjið allskostar
ánægður með þessa tilhögun og hið
göfuga markmið að láta Rebekku
ekki njóta dyggða sinna í þessu lífi,
því að á síðustu síðunni, lætur hann
falla athugasemd, sem bendir til
þessa, en þar segir hann: „Það væri
of mikil forvitni, að geta sér til um,
hvort mtnningSn um fegurð Re-
bekku og andlega göfgi hafi ekki
lifað ríkar með ívari, og sótt meira
á hann, en hin Ijóshærði afkomandi
Alfreðs konungs hefði talið æskilegt,
ef hún hefði vitað það.“
Samþjöppuð útgáfa
Þetta er haft eftir gamanleikaranum Woody Allen: „Bg sótti nám-
skeið í hraðlestri og lærði að lesa bara beint niður eftir miðri blað-
síðunni. Og mér tókst að ljúka við bókina „Stríð og friður“ á 20
mínútum. Hún er um Rússland.“
Herb Caen