Úrval - 01.05.1968, Blaðsíða 124
122
ÚRVAL
Wensley sendi Cook til þess að
leita að námfúsa múraranum. Og
að vörmu spori var Cook kominn
með hann á fund Wensleys. Eftir
nokkrar meinleysislegar spurning-
ar spurði Wensley skyndilega: „Af
hverju drápuð þér hana?“ í fyrstu
neitaði ungi maðurinn ásökun
þessari, en brátt missti hann stjórn
á sér og gafst upp. Stúlkan hafði
sagt honum, að hún væri vanfær.
Hann sagðist hafa verið gripinn
ofsahræðslu, hann hefði barið
hana, svo að hún hneig niður, síð-
an hefði hann dregið hana að elda-
vélinni og stungið höfði hennar inn
íofninn, síðan hefði hann beðið
eftir því, að gasið gerði út af við
hana, svo hefði hann skrúfað fyrir
það og farið á bókasafnið.
„Hvernig vissirðu, að þetta var
morð ,og hvernig vissirðu, hver
morðinginn var?“ spurði Cook
Wensley yfir bjórglasi nokkru síð-
ar.
„Það var ósköp einfalt," svaraði
þessi Sherlock Holmes frá Scotland
Yard. „Stúlkan var látin, þegar
húsmóðirin kom inn í herbergi
hennar, og þá hafði þegar verið
skrúfað fyrir gasið, en húsmóðirin
sagðist ekki hafa snert neitt þar
inni. Hefurðu nokkurn tíma heyrt,
að nokkur, sem hefur stytt sér ald-
ur á gasi, hafi svo skrúfað fyrir það
á eftir?"
,,Furðulegt!“ svaraði Cook. „En
hvað var það, sem þú tíndir af
pilsi stúlkunnar?“
„Svolítil ögn af múrhúðunarefni,“
svaraði Wensley. „Viltu fá annað
glas?“
Fred Wensley hefur verið kall-
aður mesti leynilögreglumaður
allra tíma. Og með lausn sinni í
málinu „Sjálfsmorð saumakonunn-
ar“ bætti hann enn einni afreks-
sögu við hina löngu afrekaskrá
Morðdeildar Scotlands Yards, en
afrek þeirrar deildar eru mörg goð-
sögnum líkust. Deild þessi var
stofnuð árið 1919 undir stjórn
Wensleys. Hún gekk opinberlega
undir nafninu „Deild C-1 í Borg-
arlögreglunni.“ En nú er hún skip-
uð 10 færustu sérfræðingum heims
í öllu því er snertir rannsóknir í
morðmálum. Þeir eru kallaðir
„Hræðilegu mennirnir tíu í Scotland
Yard“. Og þeir mynda síðustu lif-
andi tengslin við tímabil Sherlocks
Holmes.
Síðasta áratuginn hefur Morð-
deildin rannsakað 418 morð og
leyst 390 þeirra, en það er einn
bezti árangur, sem náðst hefur af
nokkru lögregluliði. Trenchard
lávarður, sem nú er látinn, hefur
lýst leyndardómi þessarar vel-
gengni einkar vel með eftirfarandi
orðum, er hann mælti árið 1936, en
þá var hann yfirmaður Scotlands
Yards: „Þegar um morð er að ræða,
þá er eina tækið, sem fært er um að
skilja hina flóknu starfshætti
mannsheilans....... annar manns-
heili. Við reynum því að tryggja,
að heilastarfsemi manna okkar sé
á háu stigi, að þeir hafi til að bera
innsýn í flækjur mannssálarinnar
og skilnings á starfi mannshug-
ans.“
Það er reyndar ekki svo mjög
auðvelt að tryggja sér slíka starfs-
krafta. Að vísu dreymir sérhvern
rannsóknarlögregluþjón Lundúna-