Úrval - 01.01.1973, Blaðsíða 129
127
Ég hef alls varið fimmtán dögum á
Islandi, og allan þann tfma hafa
þessar spurningar verið mér mikið
viðfangsefni, þvi að sem alþjóðlegur
starfsmaður Sameinuðu þjóðanna hef
ég f sama mæli og þið áhuga á framtið
ykkar og félagslegri velferð, þvf að ég
horfi til langs tima, er ég fjalla um þau
málefni, sem fyrir mig koma, og
virðast örugglega munu verða
verkefni náinnar framtíðar. betta geri
ég vegna stöðu minnar og þar sem ég
skipti mestmegnis við stjórnvöld með
markmið Sameinuðu þjóðanna í huga.
Að lokum vil ég segja ykkur þetta:
Ráðgerið framtfð ykkar og látið hana
verða, eins og þið viljið, að hún verði.
Næturgagn, kveðjukossar og liís.
Þegar Islendingar fá vin og öl hjá kaupmanninum þreyta þeir sam-
drykkju, kveðandi um hreystiverk forfeðranna. Má þá enginn rfsa upp til
þess að kasta af sér vatni heldur stendur jafnan við boröiö dóttir
húsráðanda eða önnur kona, sem réttir fram næturgagn, þegar einhver
bendir til. Hellir stúlkan siðan úr næturgagninu og bfður þess, að rööin
komi að hinum næsta. ■
Islendingar kveðjast með kossi og gæta um leið að þvi, hvort þeir sjái lús
skrfða á fötunum. Ef svo er, taka þeir lýsnar hver af öðrum og þakka sfðan
berhöfðaðir jafnoft og tala lúsanna krefur.
Ferðabók Dithmar Blefken frá 1607
Þar drekka menn hafiö
FráAPN:— Borgin Sjevtjenko fær daglega 135 milljónir lftra
neyzluvatns frá eimingarstöð, sem eimar vatn úr Kaspíahafinu. Borgin er
staðsett á Mangyjlak—skaganum, sem er á austurströnd Kaspiahafs. I
umhverfi borgarinnar er gnægð járns, kopars, sjaldgæfra málma og
brennisteinsefna og i borginni er blómlegur iðnaöur, en á margra
kflómetra svæði er ekki að finna dropa af fersku vatni.
Fyrir tiu árum bófust visindamenn handa við að athuga möguleika á að
framleiða vatn, sem nægði heilli borg. 1 fyrstu tilraununum voru eimaðir
5000litrará klst. og var sifellt unnið að þeim, þar til góður árangur náðist.
Sjávarvatnið er fyrst látið renna inn i eimingarker, sem er kalkborið og
bindur það ketilsteininn, þegar vatnið sýður. Þetta hefur vakið mikla
athygli alls staðar. Þaðan fer vatnið i gegnum nokkra klefa. Þrýstingurinn
rénar smám saman i klefunum. 1 þeim síðasta sýður vatnið við 45 gráður á
C. A leið sinni út i vatnsleiðslur bæjarins fer vatnið i gegnum ýmsar siur og
verður smám saman á bragðið eins og ferskt vatn.
Það er fylgzt vel með þvi, að vatnið sé hreint. Læknar fylgjast með
borgarbúum til að komast að raun um, hvort vatnsneyzlan hafi óheppi-
legar hliðarverkanir i einhverium aldursflokki.