Úrval - 01.01.1973, Blaðsíða 83
81
tómat) eða ávexti. Þeir eru ágætir
staðgenglar sætinda og brauðmetis,
sem aöeins eru orkugjafar. Þeir eru
ekki aðeins nærandi, heldur kenna þeir
barninu jafnframt að beita tönnunum.
Kennið barninu aö meta vat’ri, það
virðist vera horfin tið aö vatn sé
drukkið! Gosdrykkir, ávaxtadrykkir
(juice) og mjólk hafa komið i þess
stað. En vatn er og veröur bezti
svaladrykkurinn og nauðsynlegt
likama okkar.
Á köflum dregur úr matarlyst
barnsins, oft við t.d. 2 ára aldur.
Skammtiö þá barninu nógu litiö, þar til
matarlystin hefur aukizt og þaö biöur
um meira. Látið ekki mjólk koma I
stað matar á slikum timabilum. Látið
hana ekki sjást við aöalmáltiðir. Ekki
svó að skilja, að mjólkin sé ekki i fullu
gildi sem eggjahvitu-.fjörva- og
steinefnagjafi, en 3/4 1 ætti að duga á
dag. En of mikil mjólkurdrykkja er ein
aðalorsök offitu á börnum samkvæmt
upplýsingum Heilsu verndar-
stöðvarinnar og jafnframt getur
mjólkurþamb orsakaö blóðleysi, þar
sem mjólk er járnrýr.
Notið aldrei matinn til að friöa
barnið, á hvaða aldri sem er. Móðir,
sem gripur til pelans kl. 2 á nóttu til að
þagga niöur I barninu, af þvi aö hún er
of löt til aö fara fram úr og skipta á
þvi, veldur óbætanlegu tjóni.
Matur er til að seðja hungur og sjá
okkur fyrir vissum nauðsynlegum
næringarefnum, en til hans á ekki að
grlpa, sem hækju I tilfinningalegu
tilliti.
Islenzkar mæöur eiga völ á mjög
góöum leiöbeiningum I bæklingi, sem
nefnist „Leiðbeiningar um meðferð
ungbarna”. Er 'hann gefinn út af
Heilsuverndarstöð Reykjavikur, og fá
allar mæður hann hér i borg og geta
allar ljósmæður, læknar og heilsu-
gæzlustöðvar fengið hann til út-
býtingar og er þaö viðast hvar gert.
Einnig er Mæörabókin mjög góö
hándbók fyrir mæöur.
Ný gerö þrividdarkvikmynda sýnd I Moskvu
Undanfarið hafa áhorfendur I Október kvikmyndahúsinu I Moskvu
hrokkið undan hákarli, sem stingur sér út úr tjaldinu og fram i salinn og
þeim hefur virzt fuglar sveima um höfuö sin.
Þarna fóru fram revnslusýningar á nýrri gerð þrividdarkvikmvnda,
sem fundin hefur verið upp á vegum Vismdarannsoknarráösms.
í grundvallaratriðum byggist hin nýja aðferð á þvi aö teknar eru
margar myndir samtimis af sama hlutnum og frá vandlega útreiknuðum
sjónarhornum. Við skoðun þessara mynda þurfa menn ekki að vera með
sérstök glegaugu eða sitja hreyfingarlausir.
Ahorfendur hrifust einkum af þrividdarmyndum, sem teknar voru úr
þyrlu og myndum frá tunglinu.
Þávar á dagskránni hluti úr nýrri mynd eftir A. Andrievsky, Circus
Show, en hún er tekin með hinni nýju aöferð.