Úrval - 01.01.1973, Blaðsíða 127
/
ISLENZK
FERÐAMÁL
Túrismi táknar hreyfingu fölks
milli staða til þess að taka þátt
i. hvers konar starfsemi á
hinum ýmsu áfangastöðum. Auðvitað
á það við þær athafnir, sem eru gerðar
til skemmtunar og hressingar, en
samkvæmt skilgreiningum stjórn-
valda tekur það stundum einnig til at-
hafna vegna starfs eða viðskipta,
stjórnmála og opinbers erindis-
reksturs, trúmála, fjölskyldumála,
menntunar og heilsubótar.
Túrisminn felur i sér, aö eitthvað
laði fólk til staðanna, sem er
aðaltilgangur ferðalaga fóiksins en
jafnframtkoma tilaðstaðaiog þjónusta
við ferðafólk og margs konar athafnir
þess, sem þeir, sem að ferðamálum
starfa, leitast við að veita i skiptum
fyrir peninga með þvi að nýta
auölindir gistilandsins.
Ferðamennska getur verið
ábatasamur viðskiptamöguleiki fyrir
athafnamenn og jafnframt ábatasöm
atvinnugrein fyrir riki, svo sem ís-
land, og rikisstjórnir efla yfirleitt
þróun hennar.
Breytir þjóðfélagi og umhverfi
Hins vegar hefur framþróun
túrisma einnig áhrif á þjóðlif og um-
hverfi igistilandinuþegar sifellt fleira
fólk ferðast um til að fremja sifellt
fjölbreytilegri og umfangsmeiri
athafnir, og sifellt fleiri útlendingar
leggja leið sina til landsins og valda
umrótiiefnahagslegu og félagslegu lifi
á gististöðunum og breyta um leið
þjóðfélagi og umhverfi þar.
Þetta eru staðreyndir lifsins, sem
verður að mæta á raunhæfan hátt, þvi
að þær eru þáttur i framförum
mannsins.
Þó hafa óvandir eða fáfróðir og
fégráðugir menn ekki hikaö við að
notfæra sér uppnámið til að eyöileggja
auölindir ferðamannastaöanna, til
þess að þeir fái skjótan hag af vaxandi
áhuga á ferðamennsku. Aörir hafa
verið óvitrir og valdið of hröðu róti i
efnahags— og félagslegum efnum
gististaðanna, þannig að landið hefur
glatað sérkennum sinum.
Þróun ferðamennsku hefur oft verið
kennt um þessi neikvæðu áhrif. 1
byrjuninni, segja sumir, viröist allt
bjart og fagurt,og siðan verður það
skyndilega dökkt og ljótt. Aðalorsök
þessa er skortur á áætlanagerð,
stefnuleysi, skortur á ákveðnum
markmiðum i þróun ferðamála.
I ferðamálum er kynningar — og
eflingarstarfsemi ágæt, en markmið,
stefna og áætlanagerð eru jafn
mikilvæg.
Framtið ferðamennsku á Islandi er i
mótun nú þegar, á þessari stundu,
þegar þið tslendingar ákveðið mark-
miöin, sem á að ná, skilgreinið stefn-