Úrval - 01.01.1973, Blaðsíða 53
51
FLÖSKUPÓSTUR
Flöskupóstur hefur afrekað mörgu i aldanna rás.
Or Sjómannablaðinu Vikingi.
Fyrstu heimildir um notkun
flöskupósts á Norðurlöndum
til vlsindalegra nota eru frá
Sviþjóð árið 1802, er menn gerðu
tilraun til þess að kynnast ferðalagi
Golfstraumsins. En á ýmsum timum
viða um heim, hafa menn reynt að
koma frá sér upplýsingum með flösku-
pósti, sérstaklega i neyðartilfellum, en
einnig i visindalegum tilgangi og jafn-
vel til gamans, og flöskupóstur hefur
einnig komið fyrir i skáldskap merkra
höfunda. Hér verður greint frá
nokkrum frásögnum um flöskupóst af
ýmsu tagi.
Andrée leiðangurinn.
Arið 1897 gerðu Sviarnir Andrée
Fraenkel og Strindberg tilraun til að
komast á Norðurpólinn I loft-
belgnum„örnen”. Þeir lögðu af stað
11. júli það ár, og 14. júli var vitað að
þeir voru komnir yfir 80 gr. norður
breiddar og 30 gráður austur lengdar.
Sem kunnugt er fórust þessir
leiðangursmenn, og það var ekki fyrr
en I ágúst 1930 sem norskt skip fann
siðasta verustað þeirra á Hvitey
norðaustur af Spitzbergen.
Leiðangursmenn höfðu með sér i
körfu loftbelgsins nokkrar flotbaujur.
I bókinni,, Með örnen mot Polen” er
skýrt frá þvi hvernig fyrstu baujunni
var kastað út kl. 22.00, daginn sem lagt
var af staö. Kona sem var að leita að
rekavið á Lögsletten við norsku Finn-
merkurströndina fann þessa bauju 22.
ágúst árið 1900. Hún var þá nýrekin I
land, og hafði þannig verið i 1142 daga
á reki án þess að hljóta nokkurn skaða.
Annarri bauju var kastað frá „örnen”
nokkru siöar sama kvöld, en hún
fannst 672 dögum sfðar i Kollafirði við
Norðurströnd tslands (skammt
sunnan við Steingrímsfjörð). Daginn
eftir, þann 12. júli 1897 var kastaö
nokkrum baujum, þar á meðal hinni
stóru Pól—bauju. Ætlunin var að stað-
setja hana á Norður—pólnum, en þar
sem hún var nokkuð þung hefur henni
verið fórnað. Ef til vill mætti álykta,
að þeim félögum hafi þá verið orðið
ljóst, að þeir myndu ekki ná takmarki
sinu. Pól—baujan fannst tveimur
árum og tveimur mánuðum siðar við
„Kung Kai*ls”— land. ísinn hafði þrýst
henni 50 til 60 fet upp úr fjöruborðinu.