Úrval - 01.01.1973, Blaðsíða 16
14
skeiðvellinum, fer hún úr peysunni og
sýnir upphandleggsvöðvana. Og það
er auðséð, að þetta eru góðir vöðvar.
,,Ég er mjög sjaldgæfur einstaklingur
i likamlegu tilliti. Ég vona, að þetta
hljómi ekki eins og ég dýrki sjálfa mig.
Ég er bara óvenjuleg að þessu leyti.”
Segja má, að hún eýði einnig mest-
öllum fritima sinum i návist hesta.
Aðaltómstundastarf hennar er að fara
með hesta á beit. „Ég kem oft yfir i
hesthúsin á kvöldin og labba með þá á
beit,” segir hún, „sérstaklega þá
hesta, sem tryggja mér sigurinn.”
Hún er algerlega gagntekin af
veðreiðum.. Hún virðistr ekki hafa
áhuga á neinu öðru. „Ég elska hesta
og hraða,” segir hún, „og ég hef alltaf
haft ánægju af samkeppni.” En ekkert
er mér þó eins mikilvægt og að sigra i
veðhlaupi. Það veitir mér andlega
fullnægingu. Ég verð mjög niður-
dregin, ef ég vinn ekki. Ég mun ná
mjög langt.”
Robyn hefur létzt svo mikið, að hún
virðist nú ekki eiga neina varaorku
tilfinningalifins til þess að gripa til.
Hið minnsta tilefni gremju fer mjög
illa með hana, og oft fer hún þá að
gráta, þótt tilefnið sé ekki mikið. Hún
hefur næga þolinmæði gagnvart
dýrum. En hún móðgast við fólk af
hinu minnsta tilefni, imynduðu eða
raunverulegu, en sættist eins
snögglega við það aftur. Það hafa
alltaf verið geysilegar sveiflur i til-
finningalifi hennar, hátindar og
lægðir, bæði þegar vel hefur gengið og
þegar á móti hefur blásið. „Ég skapa
mina eigin árekstra,” segir hún
rólegri röddu. Fyrir tveim árum
sleppti hún sér alveg i hamslausri reiði
og lamdi ráðsmann i hesthúsum
Jerkens með svipu þvert yfir andlitið.
En undanfarið hefur ekkert annað
gerzt af svo alvarlegu tagi.
Kannske hefur sú staöreynd áhrif á
skap hennar, að hún er að öllum
likindum sifellt hungruð. Hún sveltur
sig næstum þvi, nema einstaka
sinnum, þegar hún sleppir sér i algeru
átæði. Nýlega át hún i eitt mál tvö
rækjuhanastél, tvöfaldan skammt af
rifjasteik og skammt af nautahakki og
næstum fulla skál af Cæsarsalati.
Slíkum risamáltiðum skolar hún niður
með hvitvini og bjór, sem hún drekkur
til skiptis. Næsta dag byrjar hún svo á
sultarpillumataræðinu af mikilli
skyldurækni og nákvæmni.
Robyn er oft grimmilega gagnrýnd
og þá oft vegna afbrýðisemi, enda
skemmir hún álit sitt með sinum
óljósu og oft ósönnu tilsvörum. Einu
sinni hélt hún þvi fram, að hún hefði
lagt stund á enskunám við Stanford-
háskólann og að hún hefði lokið þaðan
prófi árið 1966. Einnig sagðist hún hafa
verið samningsbundin hjá kvik-
myndafélaginu MGM. Hvort tveggja
reyndist vera alger tilbúningur. Það
finnst hvergi skráð, að nokkur Robyn
Caroline Smith (né nokkur með
svipuðu nafni) hafi fæðzt i San
Francisco þann dag, sem hún segir, að
sé fæðingardagur sinn, þ.e. 14. ágúst
1944, og ekki heldur næstu ár á undan
eðá eftir. Engin stúlka með sliku nafni
virðist helriur hafa stundað skólanám
á Hawaii, en þar segist Robyn hafa
alizt upp.Enginn, sem þekkir Robyn
vel, álitur, að hún sé þannig að fela
eitthvað skuggalegt úr fortið sinni.
Liklega er hún bara að forðast endur-
minningar um dapurleg eða ömurleg
uppvaxtarár með þvi að imynda sér
allt annars konar lif. Robyn segist ekki
eiga neina ættingja á lifi. Hún segir
ekki margt um slik efni, en hefur þó
sagt, að foreldrar hennar hafi bæði
dáið fyrir nokkrum árum.
Þrátt fyrir það dulargervi, sem