Goðasteinn - 01.09.1963, Side 5

Goðasteinn - 01.09.1963, Side 5
Jón Halldórsson, Suður-Vík: llriil úr VL'rzluimrMiuii Víkurkmnilmis Áður en verzlun hófst hér í Vík, sóttu allir Mýrdælingar verzi- un sína á Eyrarbakka. Sama máli gegndi um Skaftártungumenn, Álftveringa, Meðallendinga og Út-Síðumenn. Fljótshverfingar og margir af Austur-Síðu sóttu viðskipti sín til Papóss. Þessir flutningar hafa verið ákaflega örðugir, hvort sem litið er til Eyrarbakka eða Papóss, allar ár óbrúaðar og yfir stærstu vatnsföllin hefur þurft að ferja og sundleggja hestana. Við skulum hugsa okkur meðalbónda með tvo í taumi að eyða í þetta ferðalag tvcggja til þriggja vikna tíma, það hefur verið kostnaðarsamt svona rétt fyrir slátt, sem og oft dróst af þessum sökum. Þegar a Eyrarbakka kom, var oft mikil ös og löng bið, þar til menn komust að til að verzla. Faðir minn sagði mér, að hann hefði sent smálagð til innleggs með þeim, er fyrr fóru, sem nægði til þess, að hann komst strax að, þegar hann kom með sína ullarlest til að verzla, og hefur það efalaust verið venja föður hans, Jóns Jónssonar umboðsmanns, að haga þessu þannig. Það kom varla fyrir, að farin væri á Eyrarbakka nema ein ferð á ári. Þó kann að vera, að stöku menn hafi farið tvær ferðir, Goðasteinn 3

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.