Goðasteinn - 01.09.1963, Blaðsíða 84
Þórður Tómasson:
Slíilnflöarliviiðjíi í SIíáIIiéí
Flutt við lok námskeiðs kirkjuorganleikara og söngstjóra 5. sept.
1963.
Herra söngmálastjóri, dr. Róbert Abraham Ottósson, kennarar,
sóknarprestur, félagar og heimamenn. Ég vil ávarpa ykkur með
nokkrum þakkarorðum, áður en leiðir okkar skilja að þessu sinni.
Ég tala í nafni allra nemenda þessa námskeiðs, er ég segi við
söngmálastjórann og aðstoðarmenn hans, kennara okkar: Heila
þökk fyrir kennslu ykkar, leiðsögn, ráð og síðast en ekki sízt
bróðurlegt þel í garð okkar. Þessir fáu dagar í Skálholti hafa verið
okkur í senn skóli og skemmtun, uppörfun til betra starfs og meiri
lærdóms, er heim kemur.
Kristnihaldi er margra bóta vant á landi okkar. Boðun fagn-
aðarerindisins er verkefni kristinna manna, utan kirkju og innan.
Þar eigum við einn ákveðinn reit, öðrum fremur, og ekki þann
þýðingarminnsta. Trú mannsins hefur óvíða stigið hærra en í
tónlistinni, enda er þar ein meginstoð kirkjunnar og allrar boð-
unar Guðsorðs. Tónlistin hefur safnað okkur til þessarar stuttu
og yndislegu dvalar á þeim stað, sem um aldir var „allgöfgastur
bær á íslandi". „Mjór er mikils vísir“ segir gamalt spakmæli.
Vonandi er þetta námskeið upphaf á miklu kirkjulegu starfi hér.
Kirkjan og þjóðin hafa ekki efni á því að eiga Skálholt aðeins
sem vitni íslenzkrar sögu, sem eitt út af fyrir sig, verður þó seint
að verðleikum metið.
Islenzkir forsöngvarar og organleikarar hafa lengst af verið lítt
lærðir og ólærðir menn að nútíðarskilningi. Kirkjan á þeim mikið
að þakka, og enn getur hún ekki án þeirra verið, þótt jafnt og
82
Goðasteinn