Goðasteinn - 01.09.1963, Blaðsíða 78
þangað reka af Bryggna- og Kirkjulandsfjörum. Þangað var að
leita skýringar á því, að Fitarfjara var óvenju rekasæl.
Einhver reykur var eftir af Fitarskakk fram á mína daga.
Sögn Magnúsar Magnússonar frá Voðmúlastöðum. Hér er haldið framburði
Magnúsar á nöfnum.
VI. Féilraugur.
Freysteinsholt heitir hæð mikil á Affallsbökkum í Landeyjum
milli Fíflholts og Bergþórshvols. Nú á dögum nefna flestir það
Fressholt. Þarna átti fédraugur heima. Löngum sást blár logi í
holtinu, og mörgum var villugjarnt þar í grennd. Flefur hvort
tveggja haldizt fram á þessa öld. Ögmundur í Auraseli sá draug-
inn risla í fé sínu. Ekki var hrúgan stór, um 60 dalir að sögn
Ögmundar. Draugurinn var þá orðinn mjög máttfarinn.
Jónas Pálsson bóndi í Eystra-Fíflholti kom einu sinni að Frey-
steinsholti í austan óveðri. Blásið vik var inn í holtið að sunnan.
Jónas sá, að tötralegur karl sat undir eystra rofbarðinu og grams-
aði í peningahrúgu. Kúthola var við hliðina á honum. Jónas lét
karlinn afskiptalausan. Sumir láðu honum að hafa ekki kastað
vettling í peningahrúguna til að eignast hana.
Sumir segja, að peningadraugarnir hafi verið tveir, annar í
Stóraholti en hinn í Litlaholti.
VII. lafnavísa frá ÍS. ölil.
Sómastór
situr á Breiðabólsstað
séra Halldór
og Sigríður kona þar,
Isleifur, Kristín ágæt börn
afkomin hjónum,
Stefán, Pétur, Bergþór, Björn
báðum með Jónum.
76
Goðasteinn