Goðasteinn - 01.09.1963, Side 22
Verð á trjávið með skipinu „Astræa“, seglskip frá Halmstad í
Svíþjóð, er kom með fullfermi til H. J., fermt 2. 6. 1906.
Útsöluverð: aurar 2 x5 ” ...13
V2x7” fetið .... 2 x6 ” ...16
5/«*7” .... 7 4 x5 ” ...20
5/r*8” .... 8 5 x5 ” ...25
3/4x7” .... 7 3/4x4 ” panell ... .. . 4,5
1 x6” .. .. 8 ... 6
1 x7” .... 9 Utanhúspapparl. . ... kr. 3,00
1 x8” .... 10,5 100 þaksaumur .... 1,00
1Víx7" - .... 12 Þakjárn 8 ft 2,50
V/4X8” - .... 14 Saumur 3” pk 0,85
iy4x6” gólfb .... 11 Saumur 4” pk 1,50
1 x7” rugpl .... 7,5 Fernisolía pt 1,00
2 x4” plank. .... 11 Sementstunna .... 10,00
2 x4Va” - •••• .... 11 Eldavél 2 gafl. 40,75
Þórður Tómasson:
„Margt er sér til gamans gert"
Sigurður Isleifsson á Barkarstöðum í Fljótshlíð var meðhjálpari
í Eyvindarmúlakirkju. Einu sinni hittist svo á, að hann var ókom-
inn til kirkju í messubyrjun. Var Guðmundi Þórðarsyni vinnu-
manni í Árkvörn falið að gegna þá starfi meðhjálpara. Gekk hann
í kórdyr og bjóst til að lesa bæn, svo sem skyldan bauð. Tók hann
óvart til þeirrar, sem lesa átti í messulok, og byrjaði á þessa leið:
„Drottinn, ég þakka þér“. Bænin í messubyrjun hófst að réttu
lagi á orðunum: „Drottinn, ég er innkominn". Sigurður á Bark-
arstöðum gekk í kirkju um leið og Guðmundur hóf lesturinn og
vildi leiðrétta. Mælti hann skýrum rómi: „Ég er innkominn“. Guð-
mundur hikaði andartak, áttaði sig ekki og byrjaði að nýju:
„Drottinn, ég þakka þér“. Sigurður endurtók með aukinni áherzlu:
„Ég er innkominn, maður“. Nú var Guðmundi nóg boðið. Sagði
hann snúðugt við Sigurð: „Heldurðu, að ég sjái það ekki. Það
er bezt, að þú takir við.“ Varð það úr, að Sigurður las bænina
og gerði henni góð skil að venju.
20
Goðasteinn