Goðasteinn - 01.09.1963, Blaðsíða 89
dó þar skömmu eftir eða um 1930. Fljótlega eftir lát Ingvarar fór
til hans kona, sem hét Elísabet Sæmundsdóttir, f. 1837, d. 1911.
Hún gekk Sigríði í móðurstað með mikilli prýði. Sigríður giftist
um tvítugsaldur Magnúsi Péturssyni. Hann varð skammlífur, og
voru þau barnlaus. Skömmu eftir lát hans fór Sigríður til Ameríku,
en mér er óljóst, hvað á daga hennar dreif eftir þetta, eða hvort
hún er lífs.
Þess má til gamans geta, að þegar ég flutti að Iðu í Biskups-
tungum 1929, þá keypti ég búslóð af Jóni H. Wíum. Þar voru
með nokkrar reipahagldir, sumar úr hvalbeini, aðrar úr tré með
fallegu handbragði, merktar R. S., auðvitað úr búi Runólfs eldra.
Eina samstæðu hafði ég með mér hingað, jómfrúhagldir, og af-
henti Byggðarsafni Vestmannaeyja“.
“0“
I handraða Goðasteins er allmikið efni, sem bíður birtingar í
næsta hefti. Ritið hefur orðið mörgum hvöt til að rifja upp og
rita ýmsar minningar, sem gott er að glatist ekki. Útgefendur
þakka öllum, sem látið hafa í té efni til birtingar og ekki síður
þeim, sem veitt hafa aðstoð við dreifingu ritsins og sölu. Kaup-
endum þess sendum við einnig þakkir og kveðjur. Okkur er það
fagnaðarefni, að hið unga, sunnlenzka tímarit skuli hafa eignazt
vini, er fer fjölgandi frá degi til dags.
Með þessu hefti lýkur 2. árg. Goðasteins. Ýmsir hafa hvatt
okkur til að stækka ritið, gefa það oftar út en ráð hefur verið
fyrir gert. Kemur mjög til álita að gefa út þrjú hefti á næsta ári.
Um það þætti okkur gott að fá að heyra raddir lesenda.
Með kærri kveðju og beztu óskum.
Jón R. Hjálmarsson
Þórður Tómasson.
Goðasteinn
»7