Goðasteinn - 01.09.1963, Side 7

Goðasteinn - 01.09.1963, Side 7
hann hafi keypt smábát í Éyjum, er kostaði kr. 48,00, og skort handbært fé til að leysa hann út. Leitaði hann þá til föður míns °g bað hann að kaupa með sér bátinn, sem hann gerði. Fór Hjalti með litla bátinn á þilfari Jósefínu til Víkur. Hjalti getur þess, að fyrst hafi faðir minn byrjað að panta fyrir sjálfan sig, en síðan hafi margir farið að biðja hann að útvega sér vörur. Vík í Mýrdal var löggilt höfn 1887. Var það nauðsyn vegna skipakomu, því að örðugra var að fá skip, þar sem ekki var lög- gilt höfn. Halldór Jónsson bað Ólaf Pálsson, tengdaföður sinn, er þá var þingmaður Skaftfellinga, að koma þessari löggildingu til leiðar. Þannig hófst verzlunin hér við brimströndina, og held ég helzt, að hvergi hafi verzlun byrjað við jafnörðugar aðstæður og hér eru við suðurströndina, alveg fyrir opnu hafi. Áður en síminn var lagður 1914, þurfti að senda á alla eða flestalla bæi í Mýrdalnum, er vöruskip kom, og hafa mikinn hraða á, því að nóg varð að vera af fólki við uppskipunina, sem oft var erfið vegna brims. Stundum kom fyrir, þegar allir voru roættir, að sjóinn brimaði svo mikið, að ófært varð, og hélt þá hver heim til sín aftur. Við uppskipun, og enda útskipun líka, vildi varan blotna, þegar slettist yfir uppskipunarbátana, er þeir renndu í sandinn. Strax og skipið lenti, var hlaupið upp með kollubandið, og einnig með band úr skutnum, ef sjór var vondur. Urðu þá nokkrir af skipshöfninni að fara utanundir, eins og kallað er, til þess að styðja skipið um leið og það kenndi grunns °g varna því, að það félli á sjó. Var þetta hrakningasamt starf, einkum ef brim var mikið. Dytti skipið á sjó hlaðið vörum, var vissa fyrir því, að farmurinn mundi stórskemmast, ef yfir bátinn félli brimalda. Það kom sjaldan fyrir vegna dugnaðar sjómanna, en algengt var að slettist yfir skipið. Reynt var að breiða yíir skutinn, þar sem mest var af farminum, með striga eða þykkum ullarbölum, og varði það nokkuð. Slys áttu sér stað við þessi störf, en þau voru næsta fá miðað við þær erfiðu aðstæður, sem fyrir hendi voru. Skal þá vikið að verzlun og vöruflutningum. Byrjun verzlunar hér var sú, að bændur báðu föður minn að útvega sér vörur, og Goðasteinn 5

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.