Goðasteinn - 01.09.1963, Page 9

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 9
það leyti, sem faðir minn hvarf frá forstöðunni, var mikið farið að draga úr pöntunum, og um og eftir aldamótin hætti félagið að starfa, og að síðustu voru eftirstöðvar þess seldar á uppboði. Kaupfélag Vestur-Skaftfellinga hafði á tímabili mikla verzlun og fékk fullfermd skip frá Englandi. Faðir minn fékk einnig vörur með þeim skipum, en vörur félagsins voru þau árin meiri að magni. Aldrei komst kaupfélagið í verulega fjárþröng og stóð í skiium með allar skuldagreiðslur sínar. Guðmundur Þorbjarnarson, sem allmörg ár starfaði við Brydes- verzlun, minnist þess í ævinminningum sínum, þegar hann fór fyrst með Jason, vöruskipi Brydesverzlunar, til Víkur árið 1890. Hann segir þar, að við Blánefið á Víkursandi, sem kallað er, stæði Selstöðvarhúsið. Engin byggð var þá undir bökkunum, þar sem Víkurkauptún er nú, en nokkru vestar var verzlunarhús, sem Pöntunarfélag Mýrdælinga átti og notaði. Félagshúsið var traust- lega byggt, eins og timburhús á þeim tímum, og var að stærð 7x5 metrar með risi. Áfastur vesturhlið var skúr, er faðir minn geymdi í þungavörur sínar, og einnig var skúr við alla norðurhlið hússins. Dálítið var afþiljað í húsinu fyrir vefnaðar- og smávörur, en allt var það fremur frumstætt. Man ég vel, hve þröngt var í húsinu, og örðugleikar miklir við afgreiðslu, þar sem öllu ægði saman. Ég á aðeins eina uppskipunarbók fyrir vörur, sem kaupfélagið fékk með skipinu Glitner frá Skotlandi, og er þar að finna bæði skrá yfir þá, sem unnu við uppskipun, og einnig upplýsingar um kaup, er greitt var. Sjóvinnukaupið var 25 aurar og landvinnu- kaupið 20 aurar um tímann. Út var flutt með þessu skipi harð- fiskur, alls 32198 pund. Nokkru áður en þetta skip átti að halda til Islands, fréttist, að maður sá, er útvega skyldi skipið og vör- urnar, hefði látizt. Var þá stjórn félagsins kvíðandi, að vonurn, vegna óvissu um afgreiðslu. Á þessum árum var enginn sími og skipaferðir strjálar og óvissar. Það varð úr, að félagsstjórnin sendi mann úr sínum hópi, Jónatan Jónsson, til Skotlands til að ráða fram úr þessum vanda. Heppnaðist för hans vel, og kom skipið á tilsettum tíma og sendimaðurinn með. Pöntunin nægði tæplega til að skipið væri fullfermt, og tók hann þá í viðbót koi Goðasteinn 7

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.