Goðasteinn - 01.09.1963, Page 14

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 14
sjóvinnu x,8o um tímann og í landvinnu kr. 1,30, og varð kostn- aðurinn kr. 319,68 við útskipun. Til gamans má geta þess, að vinnulaun við upp- og útskipun hjá Verzlun Halldórs Jónssonar árið 1929 voru kr. 11670,00. Þá var tímakaupið í sjóvinnu kr. 1,50 og í landi kr. 1,00. Þetta hefði numið miklu nú á tímum, þegar tímakaupið er um kr. 25,00. Það voru venjulega þrír uppskipunarbátar við hvert skip, allt áttæringar og 17 menn á hverjum þeirra. Einnig þurfti fólk f lest skipanna. Þegar timbur var með, þurfti að binda það í flota, sem voru dregnir í land með uppskipunarbátunum. Krafðist þetta mikillar vinnu. Einnig þurfti marga menn í landvinnuna, alltaf milli 20 og 30, þar á meðal voru unglingar og einstaka kvenmaður. Af þessu kemur í ljós, að það voru að minnsta kosti um 90 manns í vinnu við að losa vöruskip og flytja upp vörurnar. Stundum kom það fyrir, að óþarflega margt fólk var í landvinnunni, en leitt var að vísa þeim frá, sem komnir voru til vinnu, stundum um langan veg. Yfir árið var þarna um allmikla vinnu að ræða, kaupið var að vísu ekki hátt, en vörur voru líka í lágu verði. Kaupið við sjóvinnu var ætíð nokkru hærra heldur en í landi, enda var sú vinna bæði erfið og áhættusöm, og fylgdi henni mikil vosbúð. Efast ég um, að fólk fengist í þess háttar vinnu nú á tímum. Sauðfjárslátrun hófst hér í Vík í smáum stíl rétt fyrir aldamót og jókst hún ár frá ári. Um 1915 var svo komið, að allir hættu að reka sláturfé til Reykjavíkur. Kjötið var allt saltað í tunnur, og voru oft fleiri hundruð þeirra liggjandi hér í sandinum, nokkur hluti þeirra einatt fram á vor næsta ár. Tunnurnar voru pæklaðar vikulega og vel saltað í byrjun. Aldrei komu fyrir skemmdir í kjötinu, svo ég muni eftir. Kjötið var mest selt til Noregs, en einnig nokkur hluti til Kaupmannahafnar. Innihald hverrar út- fiutningstunnu vó 113 kg, en spaðsaltað til nota innanlands 130 kg. Gærurnar voru einnig sendar héðan beint til útlanda, eftir að hætt var að raka þær og selja haustullina, svo sem gert var fyrstu árin. Allt þetta heppnaðist, þótt erfiðlega gengi stundum. Eins og áður er getið, kom síðast vöruskip hingað 1940. Land- 12 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.