Goðasteinn - 01.09.1963, Page 15

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 15
Vík í Mýrdal 1910. ferðir höfðu þó byrjað nokkru fyrr, eða þegar lokið var við að brúa Markarfljót, sem lengi var stærsta óbrúaða vatnsfallið á leiðinni til Reykjavíkur. Margar smærri ár voru þó eftir óbrúaðar, einkum undir Eyjafjöllum, t. d. var Bakkakotsá illfær bifreiðum, og einnig gat Skógaá verið slæmur farartálmi. Fyrir kom, að bif- reiðir fullfermdar nýju kjöti, urðu að snúa við vegna þessara vatnsfalla. Vegir voru og slæmir, víða aðeins ætlaðir fyrir hest- vagna, og ekki hægt að nota stærri en 2,5 til 3 tonna bifreiðir. En með þessum breyttu skilyrðum, var horfið frá brimströndinni og öllum þeim erfiðleikum og baráttu, sem henni fylgdu og staðið höfðu yfir, frá því er fyrsta skipið lagðist hér við festar árið 1885 til 1938, þegar verulega fór að kveða að fiutningum hingað landleiðina. Margt er minnisstætt frá eldri tímum, meðan allt var flutt sjó- leiðis. Erfiði var þá mjög mikið og slysahætta jafnan fyrir hendi. En þrátt fyrir allt, sakna ég margs frá þessum árum, því að störfin voru ólíkt fjölbreyttari og lífrænni í þá daga heldur en flutningar þeir, sem nú fara allir fram mcð bifreiðum. Og fyrst °g fremst sakna ég ullarlestanna. Hver bóndi kom með sína Goðasteinn 13

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.