Goðasteinn - 01.09.1963, Page 16

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 16
ullariest á vorin, misjafnlega langar Íestir frá hverju heimili, allt frá Skeiðarársandi til Markarfljóts. Öræfingar komu æðilengi með sínar miklu lestir í einum flota, og það gerðu einnig Eyfellingar. Þess minnist ég, að Vestur-Eyfellingar verzluðu mikið fyrir pen- inga á haustin, og þótti mér viðskipti þeirra bera af, hvað pen- ingaverzlun áhrærði. Þegar leiði gaf á vorin, verzluðu Eyfellingar talsvert í Vestmannaeyjum, en ullina fluttu þeir alltaf hingað. Á þessum árum þvoðu bændur ullina heima, og var það mikil vinna. Hver fór svo af stað með sína lest, þegar ullin var þurr. Var þá oft mikil ös, því að ferðir voru ekkert skipulagðar, og eftir góðan þurrk var oft fjölmenni og mikið að gera við afgreiðsl- una. Það bætti nokkuð úr, að sumir bændur voru önnum kafntr við að leggja inn ull sína, meðan aðrir verzluðu. Þegar veður var gott og sléttur sjór, gat oft gengið vel með upp- og útskipun. Bátarnir renndu þá í fjöruna með fullum farmi, oft án þess að bíða eftir lagi. I fjörunni var allt fullt af vörum, mjölstaflar, kassar og tunnur, öllu ægði saman. Mikill straumur var af fólki og margir í sendiferðum með mat og kaffi til verka- manna. Sjómenn höfðu svo mikinn áhuga á, að vel gengi að flytja vörurnar á milli, að þcir aðeins fleygðu sér niður í fjöruna til að borða, og kaffið var drukkið á hlaupum mátti segja. Það vakti athygli, er ullarlestirnar komu austan yfir Mýrdals- sand, hvað allur frágangur hjá bændum var góður, sem að nokkru hefur verið arfur frá Eyrarbakkaferðunum, því að á þeirri löngu leið hefur ekki veitt af að búa vel upp á hestana. Ullinni var vel þjappað í pokana, bæði til þess, að þeir tækju sem mest, og einnig var þá minni hætta á, að hún vöknaði. Margir höfðu ullina í hærusekkjum og vaðmálssekkjum, er voru með litlum horn- högldum að ofan og skinn sett í opið og dregið saman með snæri. Pappírspokar þekktust ekki til notkunar í verzlunum fyrstu árin, en mikið magn kom af prentuðum dagblöðum frá Danmörku til umbúða. 1 stað bréfpokanna voru notaðar skinnskjóður, og minn- ist ég þess, hve mikið glamraði í glerhörðum skjóðunum, þegar hellt var í þær kandís eða kringlum úr vigtarskúffunni. Hvítasykur kom lengi í svo nefndum sykurtoppum, er vigtuðu hver sem næst 5 pund. Bændur tóku þá stundum í heilu lagi, 14 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.