Goðasteinn - 01.09.1963, Side 25

Goðasteinn - 01.09.1963, Side 25
Þorsteinn Þorsteinsson og Ingigerður Runólfsdóttir. og sigraði“. Hinn 8. júlí á því herrans harðindaári 1881 gengu þau Ingigerður og Þorsteinn í heilagt hjónaband, og var brúðkaups- veizlan haldin í nýbyggðri heyhlöðu, fyrstu heyhlöðu með báru- járnsþaki, sem byggð var í Holtunum. Þau byrjuðu búskap á Berustöðum móti afa mínum, Þorsteini Jónssyni hreppstjóra, og bjuggu þar í 50 ár, samfleytt. í hjónabandi voru þau í 53 ár. Þau eignuðust 13 börn, 9 syni og 4 dætur. Þrjá drengi misstu þau unga, en 10 barnanna komust til fullorðinsára og eru öll á lífi nú, 79 ára það elzta en 59 ára það yngsta. Afkomendur Ingigerðar og Þorsteins eru nú 108. Móðir mín var mikil myndar- og dugnaðarkona. Hún sneið og saumaði allt á heimilisfólkið, sem var vcnjulega 16 manns. Allir voru í heimaunnum ullarfötum, innst sem yzt fata. Enga konu - utan eina - hefi ég séð þeyta rokkinn og teygja lopann með jafn miklum hraða sem hana. Ef ekki voru aðrir til, þá óf hún í vef- stólnum bæði salúnsvefnað og annað, er fyrir lá. Einnig var hún dugmikil við útivinnu, hvort sem um sumar- eða vetrarstörf var -3 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.