Goðasteinn - 01.09.1963, Page 27

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 27
skemmtistundir. Þá voru börnum sagðar sögur, farið var út í fjós og sungin ættjarðarljóð, kvcðizt á, farið á skauta, ef tungls- ljós var, o. m. fl. Og þó söngskálinn væri aðeins lélegt fjós og áheyrendurnir stynjandi kýr og baulandi kálfar, skorti ekkert á sanna gleði. Þá gat líka verið, að tækifæri gæfist í hálfrökkrinu fyrir bóndasoninn eða vinnumanninn að þreifa eftir hönd heima- sætunnar eða vinnukonunnar, hvað árangur sem það svo bar, það er önnur saga. En nú er öld önnur, margir bændasynir í sveitum búa konulausir, og slá sumir þeirra því fram, að ýms tækifæri frá gamla tímanum séu glötuð, svo sem á rökkurstundum og við lamhúsgjöf með ungri stúlku, svo að eitthvað sé nefnt. Sjálfsagt eru fleiri orsakir að konuleysi sumra sveita. Máske er þetta góðlát gamansemi, en alvörumál eigi að síður. Ég drap á það, að fleiri konur væru mér hugstæðar frá bernskuárum og rökkurstundum en móðir mín. Fyrst er þá að minnast Guðrúnar. Það var hennar fulla nafn, en við kölluðum hana jafnan Guðu. Hún eldaði matinn í gamla hlóðaeldhúsinu. Oft súrnaði henni í augum undan reykjarsvælunni, og sá ég þá vatnið streyma úr augum hennar. Hélt ég þá einatt, að Guða væri að gráta, en þegar ég minntist á það við hana, brosti hún og sagði: „Það er bara reykjarsvælan". Hjá Guðu sat ég oft við hlóðirnar. Hún sagði mér sögur og ævintýri, en ég hlustaði og horfði í hálfrökkrinu í eldsglæðurnar undir matarpottinum. Mér fannst loginn taka á sig ýmsar kynjamyndir eftir söguþræðinum: blossandi fagur, leiftrandi eða dimmur, hræðilegur, hrollvekjandi. En allt var þetta heiilandi og seyðandi fyrir unga barnssál. Og alltaf var krafan: meira, meira að heyra. Á milli sótti ég tað- flögur til að bæta í eldinn og táði fífu í kveik lýsislampans. Guða gerði kveikinn og bætti í lampann, þegar þraut þráð og ljósmeti. Svo var talið sjálfsagt að bíða við, þangað til ádrepustætt væri á súpupottinum. Alltaf var þörf fyrir einhverja sleikju í magann í þá daga. Nú er troðið í unglingana, hvort sem þeir hafa þörf fyrir það eða ekki. Gott er, að sulturinn er úr sögunni, en „hóf er bezt að hafa á öllum máta“. Að síðustu Guðlaug eða Gulla mín, eins og ég kallaði hana alltaf. Engan, utan móður mína, þótti mér eins innilega vænt um ?-5 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.