Goðasteinn - 01.09.1963, Page 28

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 28
og Gullu mína. Hún var mér svo hjartanlega góð og vildi allt fyrir mig gera. Hún prjónaði í rökkrinu, eins og allar gamlar konur gerðu þá. Á hljóðum rökkurstundum finnst mér enn, að ég skynji tifið og smellina í prjónunum hennar frá löngu liðnum kveldum. Eg svaf hjá henni, andfætis í rúminu. Hún var víst eitthvað brjóstveik, og því svaf ég ekki upp í arminn, en það var mér mikið angur. En til fóta sofnaði ég þó vært með vinnu- lúna og bólgna fætur hennar við brjóst mér. Svo varð Gulla mín að lúta þessu sama lögmáli, sem allt líf er háð, að deyja. Þá var ég hnípinn og undraðist, þegar hún var látin í svarta kistu og reidd um þverbak á stórum rauðum hesti. En að enginn skyldi gráta, var mér torskilið þá. Að endingu ætla ég að láta fylgja svipmynd tveggja daga frá æskuárum mínum, ef einhver hefði gaman af að kynnast þeim. Það var fagur júlímorgunn í u. viku sumars. Fráfærur voru ný- afstaðnar. Sá fyrsti, sem fór á fætur, var eldakonan, kl. rúmlega 5. Það fyrsta, sem hún gerði, var að renna mjólkinni frá fyrri málum, flóa hana til skyrgerðar og búa í strokkinn. Smalinn var vakinn kl. 6 að morgni til þess að smala ánum. Svo fóru mjalta- konurnar að mjólka kýrnar. Kýrnar voru 5, ærnar 70. Þegar smal- inn kom með ærnar á kvíaból, komu mjaltakonurnar í kastpilsum úr strigapokum. Þær hjálpuðu smalanum að kvía og telja ærnar. Ef eitthvað vantaði, varð smalinn að fara aftur og leita. Þótti það leiðinlegt verk, því'ekki var á vísan að róa, hvar þær voru. En ef enga vantaði, þá lyftist brúnin á smalanum, og þá mátti hann borða og hvíla sig, meðan mjaltað var. I kvíunum röðuðu ærnar sér hlið við hlið, meðan rúm var, en hinar stóðu á gólfi milli raða. Mjaltakonurnar voru tvær. Ærnar voru mjólkaðar tvær mjaltir. Við síðari mjöltina brá mjaltakonan fingri sínum í froðuna á mjólkinni og „pentaði“ á malir ærinnar. Var það merki um, að síðari mjölt væri hafin, en enga á mátti mjólka nema tvisvar í mál. Þegar mjöltum var lokið, var mjólkin síuð og sett upp í mjólkurtrog og byttur í mjólkurhúsinu. Varð þá að gæta þess vandlega, að kisa leyndist ekki í mjólkurhúsinu, því henni þótti gott að reka þófa ofan í rjómann á trogunum og sleikja hann af. Gæta varð þess, er mjólkin var sett upp, að hæfilega 26 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.