Goðasteinn - 01.09.1963, Side 29

Goðasteinn - 01.09.1963, Side 29
mikið væri í hverju íláti, til þess að mjólkin „settist“ sem bezt, þ- e. að sem mest af rjóma kæmi ofan á í mjólkurílátunum. Eftir mjaltir var ánum hleypt út. Lögðust þær þá á kvíabólið um stund. Svo kom smalinn með kökubitann í hendinni og rak þær í hagann. Þá þurfti líka að reka kýrnar. En í dag þurfti margt að gera, því sólin skein glatt. Það átti að þvo ullina. Hlaðin voru útihlóð úr kekkjum og grjóti, settur þar á 5 fjórðunga pottur og hitað þar á þvælið á ullina, sem var sambland af gamalli keytu, safnaðri frá vetrinum, og vatni. Kaggi var hafður til að þvæla ullina í. Var henni troðið í hann með ávinnslukvísl og svo með berum fótum, þegar tiltækilegt þótti vegna hita. Síðan var ullin reidd í kláfum á hesti á þann stað, sem úr henni var skolað. Að því búnu var hún sett upp í smá- hrúgur, þar sem hún beið breiðslu á þerridegi. Klukkan 6 að kveldi var ullarþvottinum lokið. Þá varð smalinn að fara að smala ánum, og þá endurtóku sig sömu störf og um morguninn með mjaltir og mjólkurmeðferð. Leið svo að háttumálum. Karlmenn og krakkar fóru fyrst í rúmin. Konur áttu þá eftir að ganga um baðstofu, hirða blaut og óhrein föt, gera við slitna kúskinnskó og setja þurr og hrein plögg við hvert rúm til næsta dags. Sokkum var snúið á hæl hjá vinnumönnum, einkum ef einhver hlýleiki var á milli vinnumanns og vinnukonu. Þetta voru síðustu verkin þann dag. Öllu þessu varð, að sjálfsögðu, móðir mín að vinna að og stjórna, auk matseldar og matarskömmtunar. Þá var hverj- um einstökum skammtað í sína skál eða á ask og disk, eftir því hver fæðan var í hvert sinn. Allt varð þetta að metast eftir fólk- inu, karlmenn þetta marga spaðbita í súpuskálina, konur ögn minna og krakkar minnst, heila eða hálfa köku með fiski og kartöflum o. s. frv. Þetta var vandasamt og vanþakklátt starf, og stundum voru takmarkaðar birgðir, en enginn mátti verða af- skiptur. Skammtað var venjulega í búri og öllum færður sinn tnatur á sitt rúm. Þar sat hver með sína skál eða disk og sjálf- skeiðing og hornspón, sem stungið var svo í rúmshornið eða undir sperru í skarðsúðarbaðstofunni. Borðað var þrisvar á dag, kl. 9, kl. 3 og 7 að kvöldi að vetri til en að sumri kl. 10, og var þá einungis borðað skyr. Goðasteinn 27

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.