Goðasteinn - 01.09.1963, Side 40

Goðasteinn - 01.09.1963, Side 40
„BIaðamenn“ frá tímaritinu Goðasteini á Fimmvörðuhálsi. Goðalandsjökull í baksýn. ótal giljum, gljúfrum og höfðum. Mest ber þar á Útigönguhöfða, sem er stærðar fja.ll. Fjær liggur Þórsmörk, og við greinum þar ýmsa kunna staði eins og Rjúpnafell, Valahnjúk, Langadal, Húsa- dal, Hamraskóga, Slyppugil, Stórenda, Búðarhamar og margt annað merkilegt. Fyrir innan Mörkina taka við Almenningar og þar rísa Lakar háir og tignarlegir. Handan Markarfljóts setja fjöl- mörg kennileiti svip á landið. Þar er Grænafjall, Einhyrningur, Tindfjallajökull og Fauskheiði. Svo er þar Hitagil og Kerið fræga, þar sem Höfðabrekku-Jóku, mögnuðum draug, var komið fyrir í eina tíð. Yfir á Emstrum gnæfa Súlur og fleiri fjöll. Einnig sést Þórólfsfell og út Fljótshlíð til Þríhyrnings. En ekki máttum við eyða löngum tíma í landfræðilegar athug- anir og héldum áfram göngunni. Leiðin var nú mjög undan fæti niður með Bröttufönn og fram á Heljarkamb. Þar á Kambinn settum við síðustu stikuna í gamalt vörðubrot og höfðum þar með lokið að merkja alla leiðina yfir háfjallið. Heljarkambur er dá- lítill fjallshryggur milli tveggja alldjúpra gilja. Fer hann mjókk- andi fram og endar í klettarana. Ekki er verulega erfitt að klifra 38 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.