Goðasteinn - 01.09.1963, Page 44

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 44
á Breiðabólsstað og heldur götuna upp að Hala. Við stukkum frá glugganum og kölluðum báðir einum rómi: „Pabbi, mamma, það kemur annar hingað“. „Þá fái þið viljann ykkar“ sagði afi. Það var boðið gott kvöld. Afi fór fram í gluggann og kallaði: „Hvur er maðurinn“? „Gísli í Hestgerði“ var svarað úti. Afi snöri sér frá glugganum, til foreldra minna og sagði: „Gísli í Hestgerði er kominn“. Faðir minn snaraðist í fötin, fór til dyra og hýsti hest- inn, kom síðan með gestinn til baðstofu. Mamma bjó sig útí eld- hús, til að sjóða gestinum mat. Þá var enn útieldhús á Hala, eins og víðar. Mamma hafði æfinlega þann sið, þegar gesti bar að garði, að bera þeim heitan mat, ef þeir gistu, og þann sið munu fleiri húsfreyjur hafa haft. Þegar Gísli hafði matazt, var honum búið rúm. Töluðu þeir faðir minn og hann lengi nætur um gamalt og nýtt. Var Gísli fróður um margt en faðir minn laginn að spyrja. Þótti okkur strákum gaman á að hlýða. Þegar risið var úr rekkju á góuþrælinn, var kominn mikill snjór og blindbylur var af austri. Hélt snjónum áfram að hlaða niður með austan hvassviðri fram yfir nón. Veðurvonzkan var svo mikil, að karlmenn treystu sér ekki út til gegninga, fyrr en upp- stytti. f eldhúsið á Hala var ekki hægt að komast, dyraumbúnaður var þar ekki góður, setti því fönn í dyrnar og inn á gólfið, og strúaðist snjófokið alla leið að hlóðum. Voru því settar upp skyndihlóðir í bænum, vestan við baðstofuna, en ekki var inn- angengt þangað. Á þessum hlóðum var kaffið hitað. Annarri matgerð og heitum mat man ég ekki eftir, fyrri en uppstytti, og eldhúsið var mokað upp. Svo var veðurillskan mikil þennan dag, frá hádegi, til þess að létti, að þrumur og eldingar ætluðu allt um koll að keyra. Undir það síðasta dró úr frosti. Kom því krapalag efst í snjóinn. Eldri menn töldu þetta mesta snjó, sem þeir mundu eftir. Á þessum árum voru 25-30 sauðir á Breiðabólsstað. Þeir voru látnir liggja við opið hús, eins og títt var, þar sem sauðir voru. Þegar bylurinn skall á, voru sauðirnir staddir í svokölluðum Hvammi, sem er nær miðja vegu milli Reynivalla og Breiða- bólsstaðar. Þar létu þeir fyrirberast, meðan á bylnum stóð. Þegar 42 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.