Goðasteinn - 01.09.1963, Qupperneq 45

Goðasteinn - 01.09.1963, Qupperneq 45
uppstytti var farið að huga að sauðunum, fundust þeir þá á áður nefndum stað. En svo var ófærðin mikil, að ekki var viðlit að þoka þeim úr bæli sínu. Voru þá teknir allir tamdir hestar á Breiðabólstaðarbæjum, farið með þá inní Hvamm og þeir látnir troða braut fyrir sauðina að kofanum þeirra. Þetta er í það eina skipti, sem ég hef heyrt talað um, að sauðir undir Breiðabólsstað- arfjalli hafi ekki bjargað sér að húsum. Fyrr á árum, og allt framyfir 1930, gengu oft margir sauðir úti undir fjallinu. Upp úr þessum byl gerði stillt veður með miklum næturfrost- um. Um fyrstu einmánaðarhelgina rak ísinn aftur að landi, og lá hann fram á sumarmál, eða lengur, eins og áður er sagt. Þegar leið að sumarmálum, fór matarskorturinn að segja til sín á mörgum heimilum. Víða hafði fóik ekki annað til að lifa á, en mjólkina úr kúnum. Mig minnir það vera þriðja sumardag- inn, að hungurvikan byrjaði á Hala, eins við strákar kölluðum fyrstu sumarvikuna og hluta af annarri þetta vor. Þá var ekkert að borða nema mjólkin úr kúnum, og hún var lítil. Kýrnar voru tvær og báðar snemmbærar. Þær voru því orðnar nytlágar, þegar komið var þetta langt fram á vor og jafnvel farið að draga við þær gjöf, eins og oftast varð að gera, þegar fram á leið. Ég man vel, hver mjólkurskammturinn minn var, og mun skammtur bræðra minna hafa verið líkur. Faðir minn átti könnu úr leir, sem var kaffiílát hans. Hún tók mörk, en aldrei fékk faðir minn hana fulla af kaffi. Það kom fyrir, að vildustu vinum föður míns var gefið kaffi í könnunni, þegar þá bar að garði. Á þessum árum bjó Páll Bjarnason á Hnappavöllum í Öræfum, merkur maður og greindur. Hann gisti oftast hjá foreldrum mínum, þegar hann var í kaup- staðarferðum til Hornafjarðar. Æfinlega var honum borið kaffi í könnunni. Nú liðu svo mörg ár, að Páll var ekki á ferð. Þá bar það til í austankalsa og blotaslitringi að vorlagi, að Páll kom og gisti á Hala. Mamma þóttist vita, að honum væri kalt í hamsi, eftir að hafa strekkt móti kalsanum yfir Breiðamerkursand. Bar hún honum því fljótlega kaffi (molasopa) og þá í könnu föður míns. Þegar Páll sá móður mína með könnuna á lofti, reis hann til hálfs úr sæti sínu, tók köldum höndum utan um könnuna og Goðasteinn 43
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.