Goðasteinn - 01.09.1963, Page 50

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 50
Ráðvönd hafa þau Skógarkotshjón verið, því ekki náði tor- tryggni samtíðarinnar til þeirra. Þau áttu 4 börn, Sigríði, sem hér verður sagt frá, Berg í Klasbarða í Landeyjum, Kristján bónda í Heysholti og Guðrúnu, sem var með móður sinni, meðan báðar lifðu. Hún dó í Holtsmúla 1926. Kristján í Heysholti átti 5 dætur, allar mestu myndarstúlkur. Ein þeirra var Kristjana í Neðra-Dal í Biskupstungum móðir Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar og þeirra ágætu systkina. Sigríður Guðmundsdóttir var fædd í Eskiholti 5. okt. 1845. Hún ólzt upp hjá foreldrum sínum en gerðist svo vinnukona á ýmsum stöðum. Var hún talin gott hjú, trú og ráðvönd, en ekki mikil- virk. Oft var hún vinnukona hjá fremur fátækum húsbændum eða frumbýlingum, og bendir það á, að hún hafi verið nægjusöm, enda ekki á allra færi að velja um vistir á þeim árum. Vorið 1890 fóru að búa í Króktúni á Landi Jón Jónsson frá Skarði og kona hans Guðrún Guðmundsdóttir frá Lækjarbotnum, annáluð gæðahjón. Fór Sigríður til þeirra vinnukona og undi þar vel hag sínum. Kristján bróðir hennar bjó þá í Heysholti með konu sinni, Kristínu Jónsdóttur, og voru þau fremur efnalítil. Kristján reri alltaf út (sem kallað var) á vetrarvertíð og reri frá Stokkseyri. Annaðist kona hans þá um skepnuhirðingu. Árið 1892 barst sú frétt, í marzbyrjun, að farið væri að fiskast vel á Stokks- eyri og víðar. Fóru þá ýmsir þangað svonefnda slógferð, en svo var það kallað, er farið var ofan úr sveitum að ná í björg frá sjó. Víða var farið að sneyðast um á heimilum, er kom fram á útmánuði, eftir fellirinn vorið 1882. Kristín í Heysholti lét ekki lengi bíða að sækja björg til bónda síns. Fékk hún Sigríði mág- konu sína lánaða til að hirða um skepnurnar og vera hjá börn- unum, meðan hún var fjarverandi. Sigríður kom við í Fellsmúla, á leiðinni að Heysholti, og bað Guðna bónda þar að lána sér broddstaf að ganga við, sem hann gerði fúslega. Kristín í Heysholti mun hafa verið 3-4 daga í slógferðinni. Daginn eftir heimkomu hennar ætlaði Sigríður upp að Króktúni. Var þá norðanstormur með miklu frosti (120 R) og skafrenningi. Kristín vildi, að Sigríður héldi kyrru fyrir og biði betra veðurs, en ekki var nærri því komandi, enda mun Sigríður Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.