Goðasteinn - 01.09.1963, Síða 51

Goðasteinn - 01.09.1963, Síða 51
hafa vérið nokkuð einþykk. Að skilnaði lét Kristín tvær ýsur í poka og bað Sigríði að færa húsmóður sinni. Gladdist hún mjög yfir að geta komið færandi hendi heim. Lækur var á leið Sigríðar. Var brú á honum milli Vindáss og Minni-Valla. Ráðgerði Sigríður að fara þar um, þótt það væri dálítill krókur, og stóð við það. Sá Eiríkur á Minni-Völlum til hennar annað veifið milli bylstrengjanna, er hann var að gefa fénu rétt fyrir hádegið, síðast skammt ofan við brúna. Miðaði henni furðu vel, þótt vindur og bylur væri beint í fangið. Eftir hádegið herti veðrið og sízt dró úr frosti. Fjögur fjárhús frá Látalæti áttu að verða á leið Sigríðar, en ékki varð þess vart, að hún færi þar um, er gegnt var fénu eftir hádegið. Lítill bugur hefði það verið fyrir Sigríði að halla sér að bæjunum vestan undir Skarðsfjalli, Hellum eða Látalæti, en ekki brá hún á það ráð. Kringum Skarðsfjall vissi enginn um ferð hennar, ætlaði enginn þar, að hún hefði lagt út í norðanveðrið. Næstu tvo daga var sýnu meira harðveður, svo fullfrískir karl- menn veigruðu sér við að fara til húsa langt frá bæ. Komst frostið þá niður í i8° R annan daginn. Úr því fór að draga niður og gerði sæmilegt veður. Á fjórða degi kom Eiríkur á Minni-Völlum að Látalæti. Llafði hann þá hitt Kristínu í Heysholti að máli og fengið fuila vissu um, að það var Sigríður, er hann sá á ferð fyrsta hörkudaginn. Vonaði hann, að hún hefði komizt að Látalæti og var nú að grennslast eftir því, hvernig ferðinni hefði reitt af. Heimilisfólki í Látalæti þótti sýnt, að mjög gæti brugðið til beggja vona með afdrif Sig- ríðar. Brugðu þeir skjótt við, Eiríkur, Árni í Látalæti og Filippus á Hellum. Fór Árni til Jóns bróður síns í Króktúni en félagar hans að Fellsmúla. Ekki hafði Sigríður komið þar til bæja. Brá þeim Króktúnshjónum mjög við fréttina um för Sigríðar, sem þau hugðu, að ekki hefði hreyft sig frá Heysholti. Samdægurs var hafin leit og var gerð mjög víðtæk næstu tvo daga. Var einna helzt leitað, þar sem skjól var eða afdrep og svo meðfram Stóruvalla- læk, en allt án árangurs. Viku síðar gerði þýðviðri. Var þá aftur hafin leit og leitað á svipuðum slóðum og fyrr, frá læknum og skammt ofar en á móts Goðasteitm 49
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.