Goðasteinn - 01.09.1963, Síða 52

Goðasteinn - 01.09.1963, Síða 52
við Fellsmúla. Engum datt í hug, að Sigríður hefði komizt svo langt, hvað þá lengra. Nú skal sagt frá atviki, sem þótti þó nokkuð einkennilegt: 1 Húsagarði bjuggu þá feðgar, Sigurður Ólafsson og Ólafur sonur hans. Hjá þeim var ráðskona, sem Ingiríður hét, mesta dugnaðar- kona en nokkuð við aldur. Ingiríður átti gráa hryssu, afar gott reiðhross. Hún var æfinlega höfð á járnum um vetur, því hún var svo órög, að hún fór út í hvað sem var, ef henni var otað á. Nálægt hálfum mánuði eftir hvarf Sigríðar, lagði Ingiríður upp í ferðalag og ætlaði að Hvammi til Eyjólfs Guðmundssonar og reið þeirri gráu. Hún ætlaði að fara á Messuvaði yfir Stóruvallalæk, þar sem var reiðvegur Húsagarðsfólks og fleiri til Skarðskirkju. Engar skarir voru við lækinn, en nú brá svo við, að þeirri gráu varð ekki þokað út í hann. Varð Ingiríður að leggja lykkju á leið sína. Nokkur vöð eru á læknum þarna frá og upp að botni hans, skammt austan við Stóra-Klofa. Reyndi Ingiríður þau öll en varð allsstaðar frá að hverfa og tók því krókinn allan. Reið hún svo norðan við bæinn í Skarði og tók stefnu á Skarðsfjall. Er þar sléttur sandur næst fjallinu en hraun, er fjær dregur. Skammt fyrir vestan túngarðinn í Króktúni er gömul og aflögð rétt, nefnd Svartarétt. Hraunhryggur er vestan við hana. Lá leið Ingiríðar um hann. Þar blasti við henni ömurleg sjón, lílc Sigríðar, svo sem faðmslengd frá axlarháum kletti. Stafur hennar, ýsu- pokinn og annar vettlingur lá undir klettinum. Líkið lá á bakið og sneri fótum í landnorður. Þótti sýnt að veðrið hefði hrakið Sigríði þennan spöl frá steininum og skelit henni á hjarnið. Talið var sjálfsagt, og heldur lánsmerki, að hlynna að líki, sem fannst á víðavangi, áður en frá því var farið. Gerði Ingiríður það sem bezt hún gat og breiddi poka, sem hún hafði meðferðis, yfir ásjónu líksins. Reið hún síðan sem hraðast að Látalæti og gerði boð fyrir Árna K. Jónsson, er þar bjó þá. Varð henni að orði, er þau höfðu heilsazt: „Ekki datt mér í hug, að ég ætti eftir að finna dauðan mann og standa á sjötugu". Sagði hún þá nánar frá fundi sínum og bætti við: „Það var eiginlega hún Grána mín, sem fann hana“. Mátti það til sanns vegar færa. Hélt Ingiríður svo áfram ferð sinni og bað Árna áður um gistingu, ef sú gráa 50 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.