Goðasteinn - 01.09.1963, Side 53

Goðasteinn - 01.09.1963, Side 53
vildi ekki leggja í lækinn. Kvað hún þá svo að orði: „Upp fyrir botn fer ég ekki aftur, því þá lendi ég í myrkri“. Grána tók ekki af henni ráðin í heimferðinni. Undinn var bráður bugur að þvi að koma líkinu í húsaskjól. Yar komið við á Fellsmúla. Guðna bónda varð að orði, er hann vissi um fundinn: „Mér hálf datt þetta í hug, því mig var að dreyma hana Siggu í nótt. Mér fannst hún koma til mín, fá mér stafinn og segja: „Hér er stafurinn þinn, Guðni minn. Ég þarf hans ekki lengur með, ég er ekki svo langt í burtu“. Fréttin um fund Sigríðar svo nálægt bæ í Króktúni fékk mjög á Guðrúnu húsfreyju þar. Mun hún hafa fengið það, sem nú er nefnt taugaáfall, er hún vissi um slysið, enda langt á leið komin. Bað hún Guðna í Fellsmúla um hús fyrir líkið, sem var fúslega veitt. Sigríður hafði verið á réttri leið, aðeins haldið fullmikið í veðrið. Átti hún um einn km ófarinn að Króktúni. „Það drukknar margur nærri landi“, segir máltækið. Mcrki sáust þess, að Sigríði hefði mjög verið tekið að kala, er hún lézt, einkum á fótum. Var þó í tvennum sokkum og hafði bundið að sér pilsin um hnén til skjóls en um leið heft gönguna. Talið var, að ýsurnar hefðu átt þátt í dauða hennar. Það var venja Sigríðar, er hún hafði eitthvað meðferðis að færa húsbændum sínum og þeim gat vel komið, að hraða förinni sem mest og forðast alla bæi. Nokkrir steinar voru látnir ofan á steininn, þar sem Sigríður fannst. Er það kölluð Sigríðarvarða og hefur verið haldið við til þessa dags. Gröf Sigríðar er vallgróin og flestum gleymd í Skarðskirkjugarði og margir hér í sveit þekkja ekki Sigríðarvörðu og söguna, sem hjá henni gerðist 6. marz 1892. Við vörðunni hrófla veður, því kletturinn, sem hún stendur á, er ávalur að ofan. Fyrr en varir eyðist hún og atburðurinn gleymist, nema einhver góðviljaður maður verði til þess að festa kross á steininn. 5i Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.