Goðasteinn - 01.09.1963, Page 55

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 55
uð var komið austur á sandinn, staðnæmdist hópurinn til að átta sig á leiðinni. Böðvar vildi þá halda lengra austur, en Oddur vildi það ekki, heldur halda í norðurátt. Ræddu þeir um þetta nokkra stund, og hélt Oddur fast við sitt. Varð það úr, að farin var sú leið, sem hann ákvað. En ástæðan til þess, að Oddur taldi sig vita betur var sú, að hann hafði skyndilega tekið eftir ókunnug- um manni með í förinni og vildi sá halda miklu norðar en leið- sögumaðurinn. Var nú haldið áfram, og réð Oddur ferðinni. Gætti hann þess vandlega að fylgja eftir ókunna manninum, er reið jafnan nokkuð á undan. Eftir skamma stund komu þeir á stað þann, er leitað var að, og hvarf þá svipurinn sjónum Odds. Staður þessi er auðkennilegur, og stendur þar lítil klöpp upp úr sandinum og hafði verið hlaðin á henni varða. Þeir félagar hrcsstu upp á vörðuna, sem var nokk- uð hrunin. Mennirnir fjórir úr Skaftafellssýslu höfðu fundizt i lægðinni norðan við klöppina, en verksummerki voru næstum engin eftir. Hinn ókunni leiðsögumaður Odds þarna á Mælifellssandi virtist vera ungur, fremur lágur vexti og nokkuð þrekinn. Ljós var hann yfirlitum með mikið enni og yfirbragð. Segir Oddur, að maður þessi standi sér æ síðan lifandi fyrir hugskotssjónum sem óvenju fagur, ungur maður, og var því líkast sem af honum stæði ljómi. Alit yfirbragðið var sérlega ljóst og slétt, og sýndist maðurinn glaðlegur. Ekki man Oddur klæðaburð mannsins og tók lítið eftir, því að honum varð svo starsýnt á yfirbragð hans. Eftir að Oddur hafði komið á stað þenna á Mælifellssandi, segir hann, að alveg hafi tekið fyrir að hann sæi svipinn í Hvann- gili. Álítur hann að fjórmenningarnir, sem úti urðu á Mælifells- sandi, hafi óskað eftir, að hann kæmi á staðinn, þar sem þeir báru beinin, og verið ánægðir, þegar hann hafði komið því í verk, og ekki sýnt sig aftur. Eftir lýsingu dettur Oddi helzt í hug, að maðurinn, sem hann sá svo oft í Hvanngili hafi verið Jón Runólfsson, og ungi maðurino fagri, sem fylgdi honum að klöppinni á sandinum, hafi verið Davíð Jónsson frá Leiðvelli. Skráð eftir frásögn Odds Oddssonar. Goðasteinn 53

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.