Goðasteinn - 01.09.1963, Page 57

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 57
hestinum og hann var á, er við hittumst á miðvikudaginn, og í sömu yfirhöfninni. Ég stanzaði andartak, horfði á, hvað hesturinn bar sig vel og hafði fallegan fótaburð. Svo fór ég inn. Eftir messu fór ég inn til prestshjónanna, drakk þar kaffi og gjörði upp ýmsar sveitarsakir við nokkra hreppsbúa, svo ég varð síðastur frá kirkjunni. Ég hraðaði mér að taka hest minn og komast af stað. Ég var kominn niður fyrir túnið í Kálfholti, þeg- ar ég minntist Sigurðar, sem ég hafði alveg gleymt. Skildi ég sízt, að hann skyldi fara, án þess að tala við mig, eins og ákveðið var, og vita, hvernig erindi mitt fyrir hann hefði gengið. Þegar ég kom heim, spurði ég þá, sem til kirkju höfðu farið, hvort þeir hefðu séð Sigurð við kirkjuna. Allir neituðu því. Þótti mér það ósennilegt en varð þó að trúa. Næst, þegar ég hitti Sigurð, sagðist hann ákveðið hafa ætlað til kirkju og hitta mig en ekki komizt það, einhverra orsaka vegna. Hvernig sem þessu er varið, sýndist mér ég sjá Sigurð þarna. Það voru ekki nema 10-15 m á milli okkar, þegar ég fór inn í húsið. Um annan gat ekki verið að ræða, ég þekkti manninn og hestinn vel, og sárafáir komu ríðandi til kirkju þennan messudag. Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.