Goðasteinn - 01.09.1963, Síða 59

Goðasteinn - 01.09.1963, Síða 59
úrskurða, hvern hann kysi sér að eftirmanni. Hann ákvað, að Þorlákur ábóti skyldi hljóta embættið og létu menn sér vel líka. Ekki verður neitt fullyrt, hvað réð ákvörðun Klængs í þessu efni, en telja má sennilegt, að Jón Loftsson í Odda, sonarsonur Sæ- mundar fróða, hafi ráðið einhverju um það. Jón Loftsson var um þessar mundir valdamesti og ríkasti höfð- ingi landsins. Þorlákur hafði að mestu alizt upp í Odda og verið þar í skóla. Oddaverjum hefur að sjálfsögðu leikið hugur á að efla áhrif sín með því að fá Skálholtsbiskup kosinn úr sínum hópi og Jón Loftsson hefur haft fulla ástæðu til að ætla, að hinn ný- kjörni biskup yrði Oddaverjum fylgiskapur, þótt á annan veg færi, þegar til kom. Þorláki ábóta virðist biskupskjörið hafa komið á óvart og fýsti hann ekki að taka við staðarforráðum í Skálholti um sinn. Klæng- ur varð við að una, og Þorlákur hélt aftur heim til klausturs síns. En sjúkleiki Klængs magnaðist brátt svo mjög, að hann gat cngum störfum sinnt. Hafði hann raunar lengi verið lítt starfhæfur og staðurinn því kominn í niðurníðslu. Á miðjum næsta vetri, eftir að Þorlákur hafði verið kosinn, sendi Klængur menn austur að Þykkvabæjarklaustri til að biðja Þorlák biskupsefni að koma þeg- ar til Skálholts og taka við biskupsstörfum. Þorlákur brá við og var kominn til Skálholts í marzlok. í fylgd með honum að austan var Jón Loftsson höfðingi Oddaverja. Þorlákur dvaldist nú um skeið í Skálholti og gegndi embætti, en Klængur var sjúkur og rúmfastur. En það var ekki nóg, að Þorlákur væri kosinn til biskups og hefði tekið við embættinu, heldur varð hann einnig að sigla á fund erkibiskups og fá af honum vígslu. Vígslan var hin nauðsynlega staðfesting kirkjunnar á embætti hans, og óvígður gat hann ekki rækt starf sitt sem biskup lengur en brýnasta nauðsyn krafði. Þegar sú staðreynd er höfð í huga, hlýtur það að vekja furðu, hversu lengi hann sat óvígður í Skálholti. Vorið“ii74 var Þorlákur kosinn biskup og við embættinu tók hann snemma árs 1175, en hann fór ekki utan í vígsluför fyrr en sumarið 1177 og vígðist fyrst sumarið 1178 eða fjórum árum síðar en hann var til starfsins kosinn. Ekki var svo að skilja, að Þorlákur hefði ekki fullan hug á að 17 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.