Goðasteinn - 01.09.1963, Page 81

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 81
þær vísur, sem ég heyrði eftir Runólf virtust vera lítt vandaðar dægurflugur. Af þessu mun hann hafa fengið auknefnið Kvæða-Runki, og það var hann kallaður, fyrst þegar ég heyrði hans getið, en þá var ég á barnsaldri. Hann mun hafa lifað fram að síðustu alda- mótum. Ég man fáar af vísum Runka, en það er sérstaklega ein þeirra, sem kemur mér til að skrifa þennan þátt, því í sambandi við hana er saga, sem mér finnst vert að bjarga frá gleymsku. Þegar Runki var á Reyðarfirði, kom það fyrir, að sækja þurfti lækni til Eskifjarðar til konu í barnsnauð. Var það um vetrartíma og veður hvasst með rigningu. Þá var læknir á Eskifirði Fritz Zeuthen, danskur maður. Var læknishérað hans mjög stórt, mun það hafa verið allur Austfirðingafjórðungur, að minnsta kosti fyrstu árin, en embættið var honum veitt 1868. Ég heyrði talað um það, að hann hefði þótt góður læknir en eitthvað mistækur þó. Hefur ef til vill misskilið fólkið. Runki var fenginn, ásamt fleiri mönnum, - ég hef ekki heyrt, hvað mörgum - til þess að fara á bát norður yfir fjörðinn að sækja lækninn. Þeir fengu talsverðan barning, því á móti veðri var að sækja. Er þeir voru lentir, gekk Runki að húsi læknisins, drap á dyr og gerði boð fyrir hann. Zeuthen kom til dyra. Runki heilsaði honum, sagði, hvert erindi sitt væri, og bað hann að koma með sér. Zeuthen tók því dauflega, kvaðst ekki fara með þeim suður yfir fjörð í svo vondu veðri sem væri og þar að auki í náttmyrkri. Runki kvað vel fært yfir fjörðinn, sagði, að hann sæi, að þeir væru komnir norður yfir, og væri þó betra að fara til baka, undan veðri. Þeir þrættu um þetta góða stund, og lét Zeuthen engan bilbug á sér finna, skellti hurð í lás og fór inn. Runka þótti nú illa á horfast, þegar læknirinn neitaði að fara með þeim. Hann fór til manna sinna, sem biðu við bátinn, og bað þá að koma með sér heim að læknishúsinu, auðsjáanlega til þess að hafa það vottfast, að Zeuthen neitaði að fara með þeim. Hann neitaði, sem fyrr, og bar því við, að ófært væri yfir fjörð- inn. Ekki er þess getið, hvort Runki tók þá votta að neitun hans, en hann mælti fram þessa vísu: Goðasteinn 79

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.