Goðasteinn - 01.09.1963, Page 85

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 85
þétt þoki að því marki, að vel menntaðir menn fari með sÖng- stjórn safnaðanna. Mörg vandamál bíða þó úrlausnar á þessu sviði og sum ekki auðleyst. í sumum söfnuðum landsins er svo komið, að enginn fæst til að gegna starfi organleikara, og líkur benda til þess, að þeim söfnuðum muni fremur fjölga en fækka á næstu árum. Nýr tími er að leysa gamlan af hólmi á íslandi. Gerbreyting þjóðfélagshátta og þjóðmenningar yfirleitt blasir við á öllum sviðum. Andlegir leiðtogar þjóðarinnar verða að hafa forystu um það að sjá því borgið, að forn menningararfur verði ekki fyrir- litinn líkt og ónýt flík heldur gerður hluti af daglegu lífi nútíma mcnningarþjóðfélags. Ég fagna starfi, sem miðar að því að koma að nýju til vegs og virðingar arfi þjóðarinnar í fornhelgri tón- menningu. Fáir vita, að almennur safnaðarsöngur lagðist niðu.r hér á landi eftir aldamótin 1800, er Grallarinn hvarf úr notkun. Fram að því kom hver maður, karl og kona, í kirkju með messu- bók sína og tók, eftir getu, fullan þátt í sálmasöng og messu- svörum. I Viðeyjarsálmabókinni var mikið af nýjum sálmum, ortum í öðrum anda en fólk felldi sig þá við, messunni sjálfri var til muna breytt, ný lög, sem fáir kunnu og flestir höfðu í byrjun andúð á, komu í stað hinna gömlu. Af þessum breytingum leiddi þann ósið, sem enn er allsráðandi, að menn komu í kirkju tii að hlusta en ekki til að taka þátt í messunni með bænum, lofsöngvum og sálmum. Nokkrir útvaldir menn sungu fyrir allan söfnuðinn. Þetta er óbærilegt viðhorf fyrir allt kirkju- og trúarlíf og ein orsök þeirra dauðamarka, sem á því eru. Aukin þátttaka safnaðanna í messunni mun leiða af sér betri kirkjusókn. Þarna er verk, sem vinna þarf í anda hins fornkveðna: „Kenn þeim unga þann veg, sem hann á að ganga, og þegar hann eldist mun hann ekki af honum víkja“. Það er svolítið undarleg tilfinning, sem fylgir því að tala þessi kveðjuorð hér. Ég þekkti fæst ykkar fyrir viku, nú finnst mér sem ég sé að kveðja gamla og kæra vini. Ég sótti þetta námskeið með hálfum huga, ekki örgrannt um, að ég bæri kvíðboga fyrir að hitta hér hálærða menn í stjórn og starfi. Allt hvarf það eins og dögg fyrir sólu. Ég hitti að sönnu hálærða menn og fann í Goðasteinn 83

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.