Goðasteinn - 01.09.1963, Page 88

Goðasteinn - 01.09.1963, Page 88
Mamma, og þau systkinin öll, voru með afbrigðum léttlynd. Það var góður arfur, betri en jarðneskur auður. Vísan hans afa er á þessa leið: Á Þorláksmessu, á Þorláksmessu þess ég strengi heit að vera ei úti á vakki, í veröldinni á flakkí, af því kólgan, af því kólgan af mér nefið beit. Vísuna kvað afi, er hann kom inn frá gegninum, en kólga mikil var úti“. Frú Elín Steindórsdóttir Briem skrifar og vekur athygli á því, að fallið hafi niður orðið móðurbróðir við nafn Þorsteins Eiríks- sonar í Haukholtum í síðasta hefti Goðasteins á bls. 6. Rétt verður setningin á þessa leið: „Þar bjó vinafólk okkar, Þorsteinn Eiríksson, móðurbróðir Guðríðar, konu Ólafs ísleifssonar í Þjósár- túni“. Móðir Guðríðar var Ingveldur Eiríksdóttir á Minnivöllum í Landsveit. Að hinu sama víkur Jón Árnason í Lækjarbotnum um leið og hann þakkar hina hugþekku grein frú Elínar um æsktu heimili hennar í Hruna. Einar Sigurfinnsson í Vestmannaeyjum skrifar á þessa leið: „Goðastein“ II, i hef ég séð og litið yfir síður hans. Þar koma gamlir kunningjar fram á sviðið. Runólf gamla Sveinsson minnist ég að hafa séð í fyrstu bernsku minni. Sigríði konu hans man ég vel, og börn þeirra, sum, þekkti ég vel, t. d. Runólf í Nýjabæ (Guðrún dóttir hans var fermingarsystir mín). Kristín Runólfs- dóttir var ljósa mín og nauðkunnug heima hjá okkur. Móðir mín, Kristín Guðmundsdóttir, átti stól, sem hún sagði, að Runólfur í Efri-Ey hefði smíðað (hefir líklega verið ferming- argjöf). Hann var ekki útskorinn, nema fangamark, K. G. D. var fallega skorið á efstu bakfjöl, áttablaðarós á mið bakfjöl og ártal á þá neðstu (18?). Þessi stóll eyðilagðist eins og margt fleira. Á Ingvöru Runólfsdóttir vil ég minnast. Hún giftist Einari Guð- mundssyni, (ekki Einarssyni), móðurbróður mínum. Þau bjuggu í Háu-Kotey. Ingvör dó skömmu eftir fæðingu Sigríðar, einkadóttur þeirra Einars. Hann flutti til Reykjavíkur og bjó þar til æviloka, 86 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.