Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1888, Blaðsíða 35
Raimsóknir sögustaða,
sem gerðar vóru 1883 um Rangárvöllu og þar
í grend, einkanlega í samanburði við
Njáls sögu.
Eítir
Sigurð Vigfússon.
í ferð þessa fór eg af stað úr Reykjavík fimtudaginn 9. ágúst
1883. Fór eg austr Hellisheiði og var í Auðsholti í Ölfusi u.m
nóttina.
Föstudaginn 10. ág. fór eg ofan á Eyrarbakka og þaðan austr
og yfir þ>jórsá á Sandhólaferju. Bœrinn að Sandhólaferju stendr
nú kippkorn frá ánni austanmegin. Hér við ferjustaðinn vó Steinn
enn snjalli (Snjallsteinn) Sigmund enn rauða, föður Marðar gígju
(Landn. Kh. 1843, bls. 286). J>ar sem ferjustaðrinn er, gengr fram
klettahöfði, sem kallaðr er Fdamar. Framan í Hamrinum er sem
lítil sandvík; þar eru ferjubátarnir hafðir, og er það sá eini hentugi
staðr þar við ána handa þeim. J>að er þvi líklegt, og enda víst,
að þar hafi ferjustaðrinn verið í fornöld; hér við ána f víkinni
hefir þvi Sigmundr verið veginn, því þeir stjökuðu húskörlum
Steins frá ferjunni og kom Steinn að í því. Uppi á þessum Hamri
hefir því hinn forni bœr staðið, rétt við ána, enn nú er hann fluttr,
síðan þar tók að blása upp. Hafa á Hamrinum fundizt ýms kenni-
merki, svo sem smiðjugjall, járnrusl og eirrusl og brýni; flögu af
þvi sá eg þar; hrossbein hafa og fundizt þar upp blásin í þeirra
manna minnum, sem nú lifa; þyki mér því líklegast, að haugr Sig-
mundar hafi verið á Hamrinum fyrir ofan víkina, þar sem hann
mun hafa fallið, og geta hrossbeinin verið úr haugnum. Norðan
tii á Hamrinum er jarðtorfa há, nær þrjár mannhæðir á hæð; er
hún að blása upp; norðan til við jarðtorfuna hafa verið einhverjar
byggingar, ekki stórar, og einhver mannvirki, sem hafa blásið upp.
Bóndinn, sem þá var á Sandhólaferju, er eg kom þar, hafði rifið
5*