Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1888, Blaðsíða 111
111
sem enn heitir Garðskrókr, á, að svo hafi verið. Enn nú getr lend-
ing þessi ekki borið þetta króks-nafn með réttu, þar eð sandrinn
frá Langahrygg nær nú orðið nokkuð norðr fyrir Króksbjarg, sem
þó er um stekkjarveg norðr frá hryggnum. þannig er þar eng-
inn krókr framar, og kunnugir menn sögðu mér, að sandrinn fœrð-
ist árlega norðr eftir, sem orsakast af hinum mikla útflutningi
Vatnanna. Af öllu hinu áðr talda er það sýnilegt, að fjarðarbotn-
inn eða.sjórinn hefir áðr náð inn á mótsvið þingstaðinn. Inn eftir
bakka þessum er hin neðsta búðaröð, er nær inn að djúpri gras-
laut í brekkunni. Hér skulu talin mannvirki þau, sem eru nokk-
urn veginn glögg, og mælingu varð við flest komið.
1. Nyrzta búðin á bakka þessum er 54 fet á lengd, n. 25 fet
á breidd. Bakkinn er hruninn að framan alt upp að hinum eystra
vegg. Búðin er mjög niðrsokkin og fornleg, svo að dyr verða
ekki ákveðnar með vissu, jafnvel þótt þær sýnist hafa verið út úr
norðrgaflinum. Búðin snýr í norðr og suðr.
2. Fáa faðma fyrir sunnan þessa búð gengr slakki upp í
bakkann. þ>ar fyrir innan er búð, 39 fet á lengd. Af því að búð-
in er nokkuð óglögg, verðr breidd eigi mæld né dyr ákveðnar.
Snýr eins.
3. Við norðraustrhornið á þessari búð, virðist hafa verið
önnur búð, sem er að mestu afbrotin. Fyrir grjóthleðslu sést í
bakkanum og liggja steinarnir úr henni þar fyrir neðan.
4. Um 12 faðma fyrir innan hinar fyrrtöldu búðir er búð, 35
fet á lengd, að því er séð verðr, þvi að lítið skarð í bakkann hefir
tekið af hinum nyrðra enda. Breidd er 20 fet, að því er séð
verðr. Snýr eins.
5. Tæpum faðmi fyrir sunnan þessa búð er búð n. 30 fet á
lengd inn á mitt gaflhlaðið á næstu búð fyrir sunnan, þvi að sama
gaflhlað hefir verið undir báðum. Breidd verðr eigi ákveðin. því
að eystri veggr er fallinn fram af bakkanum.
6. f>ar suðr af og áföst við er glögg búð, og gaflhlað þykt i
millum. Hún er 29 fet á lengd, 21 fet á breidd. Dyr virðast hafa
verið vestr úr við nyrðra gaflhlað.
7. f>ar suðr af og áföst við er búð, 31 fet á lengd niðr á mitt
næsta gaflhlað. Jafnbreið hinni. Dyr virðast hafa verið á vestr-
vegg við syðra gaflhlað.
8. þar sunnan við er búð, 41 fet á lengd, 27 fet á breidd.
Við hinn vestra vegg hefir verið litil útbygging. Dyr virðast hafa
verið eins og á hinni næstu, enn eru mjög óglöggvar. Að öðru
leyti er búðin glögg og djúp. — 4 hinar síðast töldu búðir hafa
þannig allar verið samfastar og snúa eins í norðr og suðr.
9. Einum faðmi hér fyrir sunnan er búð, 41 fet á lengd og