Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Side 12
16
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Á framhliðinni er ártal og anno með höfðaletri. — Útskurðurinn er
mjög grófur.
4. Ártal: 1774.
5. Áletrun: Höfðaletursstafurinn G og „jurtabókstafirnir" lík-
lega I D. Annars ofannefnt anno og ártalið.
6. L: Keyptur fyrir meðalgöngu S. Vigfússonar 1888. Reykjavík.
7. MÞ:-------stafirnir S A(?) d.
1. 58.097. Kistill úr furu, upphaflega festur saman með trétöpp-
um, síðar eru nokkrir járnnaglar reknir í. Lok vantar. Merki eru
eftir bæði læsingu og hjörur á báðum hliðum, merki sjást einnig eftir
handraða. L. 38.9, br. 20.5, h. 18.
2. Lok, læsingu, hjörur og handraða vantar; ljót för eru eftir
læsingu og hjörurnar. Flísar eru brotnar af. Ómálaður. 74.A.r.
3. Upphleypt jurtaskrautverk er á hliðum og göflum, allt að
8 mm hátt. Sama uppbyggingin endurtekur sig á öllum flötunum.
Stönglarnir eru mest áberandi, að mestu leyti um 1.5 sm breiðir.
Aðalstönglarnir byrja á miðjunni að neðan, og er niðurröðun sam-
hverf um lóðrétta miðlínu. Að mestu eru þeir flatir að ofan, með
innri útlínum eða innskorinni miðlínu. Þverbönd eru þar, sem þeir
skipta sér. Greinarnar enda í undningum eða í undningi og einum
tveimur blaðflipum, sem að mestu eru lagaðir sem krókar eða lykkj-
ur. Á annarri hliðinni eru tveir stöngulbútar skreyttir með kíl-
skurðarröð langs eftir, innan við útlínurnar. Á öðrum gaflinum sést
það sama. Hér eru einnig tveir stöngulbútar með krákustígsbekk,
sem myndast af kílskurði. — Útskurðurinn þróttmikill og fremur
vel gerður, skrautlegur.
4. Ártal ekkert. (MÞ: Líklega frá 17. öld, seinni hlutanum.)
5. Áletrun engin.
6. L: Keyptur fyrir meðalgöngu S. Vigfússonar 1888. Reykjavík.
1. 58.099. Kistill úr furu, festur saman með trétöppum, með
tappahjörum, skrá ónýt. Okar eru festir undir endum loksins við
gaflana. L. (loksins) 37.5, br. 21.7, h. 20.2.
2. Talsvert sprunginn. Læsingin ónýt. Skráarlaufið horfið. Ómál-
aður. 73.A.f.
3. Útskurður á hliðum, göflum og loki. Jurtaskrautverk, nánast
dregið með innskornum línum, víðast hvar mjög grunnt skorið, þó
á stöku stað 4-5 mm djúpt. Munstrið er næstum því alveg það sama