Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 54
58
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Stönglarnir eru að mestu leyti um 5 mm breiðir. Á lokinu er bekkur
af innskornum línum við annan endann, og hér er jurtaskrautverk-
inu komið fyrir, tveimur lágt upphleyptum, litlum teinungum, á fer-
hyrndum upphleyptum miðfleti. — Vel gert verk.
4. Ártal ekkert.
5. Áletrun engin.
6. L: Frá H. Sigurðssyni 1888. Akranes.
Samkvæmt H nr. 49 í HS minnsta hf.: Stokkur, lítill, útskor. með
renniloki, gl. peningastokkur. Sennilega nr. 174 í HS stærsta hf.:
------Eg fékk hann hjá Gilsi á Bárustöðum í Andakíl, fullorðnum
manni; en hann eignaðist hann eptir móður sinni, ömmu hins nefnda
Gils,1) lengur fram í tímann veit maður ekki um stokkinn. Hann er,
að sögn, gamall peningastokkur, sem geymdur hefur verið niðurá
kistubotni, undir handraðanum; enda vottar víða innaní stokknum
fyrir lautum af sliti, eptir eitthvað hart, svo sem peninga, eða ann-
að hart.
1. 64.968. Stokkur úr furu, geirnegldur á hornunum, botninn
festur á með trétöppum; fals fyrir rennilok; gat að lögun eins og
skráargat á öðrum gaflinum. L. 36, br. 23, h. 19.5.
2. Lok vantar. Tvær stórar sprungur og flísar brotnar af. Leifar
af blágrænni málningu. 31. mynd. 74.A.t.
3. Útskurður á hliðum og göflum. Upphleypt jurtaskrautverk,
um 4—7 mm hátt. Alls staðar er samhverf niðurröðun um lóðrétta
miðlínu. Stönglarnir eru mest áberandi; þeir skera hvor annan um
miðlínuna og mynda fléttur og vafninga. Annar helmingur þeirra er
„lækkaður“, sennilega með holjárni; annars er það upphleypta gert
ávalt að ofan. Undningarnir enda í „þykkildum" og litlum, frammjó-
um, sveigðum blaðflipum. Sum blöðin eru eins og smálykkjur með
„perlu“ eða „blóm“ í miðju. Stöngulbreiddin er mismunandi, venju-
lega eru þeir mjóstir við byrjun, verða allt að 1.5 sm að breidd.
Skrautverkið minnir dálítið á brjóskbarokk. — Fínt verk, gert af
kunnáttu.
4. Ártal ekkert. (MÞ: Líklega frá 18. öld.)
5. Áletrun engin.
6. L: Frá H. Sigurðssyni 1888, Akranes.
Áreiðanlega nr. 36 í HS stærsta hf.: Kistill, allur útskorinn, nema
!) Hér er sýnilega ekki allt með felldu í orðalagi. Ritstj.