Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Síða 79
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
83
Áreiðanlega nr. 42 í HS minnsta hf.: „Prjónastokkur, sívalur, með
loki, og tvöföldum skurðsnúning.“
1. 72.11í. Prjónastokkur úr furu, eintrjáningur, ferkantaður
þverskurður; með hverfiloki. Sitt typpið er á hvorum gafli og eitt
ofan á við endann á lokinu. L. (með typpunum) 27.3, br. 3.3, h. (án
typpisins) 4.
2. Lokið er laust, því að tappann, sem það hefur leikið á, vantar.
Ómálaður. (Línur, sem skornar eru inn á göflunum, hafa verið lit-
aðar svartar, ef til vill aðeins með blýanti.) 73.A.X.
3. tJtskurður á öllum flötum. Sín höfðaleturslínan er á hvorri
hlið og ein á lokinu. Á plötuna, sem fest er ofan á við endann á lok-
inu, er útskurður: innskorinn kross, kílskurðir og bogar. Aftan við
síðasta stafinn á annarri hliðinni er innskorið X með kílstungum í
þríhyrningunum. Á gaflana er innskorið X innan í ferhyrningi. Neð-
an á botninum eru innskornar rómverskar tölur. — Vel gert.
4. Ártal: MDCCCLXXXVII og óskýranlegt merki aftan við.
(1887, ef síðasta táknið heyrir ekki til tölunni.)
5. Áletrun. Á lokinu: prionar
Á hliðunum: pennar aurar
bolur nalar
6. L: Keyptur hjá frú S. E. Magnússon 1892. Cambridge, Eng-
land.
1. 72.115. Prjónastokkur úr furu, eintrjáningur, ferkantaður
þverskurður; með hverfiloki, sem leikur á typpi. Annað typpi við
hinn endann, sem festur er á. L. 30, br. 3.4, h. (með typpi) 5.4.
2. Nokkrar minni sprungur og smáflísar brotnar úr lokinu. Ómál-
aður. 73.A.W.
3. Sín höfðaleturslínan á hvorri hlið og ein á lokinu og ein á öðr-
um gaflinum. Þrír lóðréttir krákustígsbekkir með kílskurði á hinum
gaflinum. Kílskurðarraðir með köntunum við bæði typpin. — Vel
gert.
4. Ártal á lokinu: anno mdccclxvi.
5. Áletrun: annakristin/gudm
u
nds/dottir/a/stokkinn
6. L: Keyptur hjá frú S. E. Magnússon 1892.