Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Page 105
ÍSLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
109
innan við bæði handföngin. Bæði hann og sjálft keflið með afsneidd-
um köntum. L. 61, br. 7.1, h. 4.7.
2. Óskemmt. Ómálað. 45. mynd. 14.Z.Z.
3. Munstur af innskornum línum og kílskurðum á báðum hand-
föngunum; á handarbakinu er líka innskorið ANO og ártal. Á enda-
köflunum eru þrjár skipaskurðarstjörnur (fjögrablaðarósir) innan
í hringum og kílskurðir í hornunum utan með. Keflið er útskorið á
fimm flötunum. Á hliðarflötunum er áletrun með innskornum latn-
eskum bókstöfum. Skáfletirnir hafa hvor um sig höfðaleturslínu. Efri
flöturinn hefur flatt upphleyptan, reglubundinn bylgjuteinung; 1
hverri beygju er þríflipað blað við ytri kantinn. Neðan á höfðinu eru
tveir stórir gagnsettir skipaskurðir og neðan á hendinni tvær nokk-
uð djúpar rákir, aðskildar með streng. — Fremur fallegt verk.
4. Ártal: 1735.
A5. mynd.
5. Áletrun. Höfðaleturslínurnar:
ulfhilldurionsdotteraþesse
kiefleenneinginnönnurmedriett
Innskorna áletrunin:
VIRDA.BID.EG.VIFID.VEL.VÖNDVD.LITID.KIEFLIS.ItÖ
ND.AD.LIKTVM.SO.ÞIG.LINDIN.FEL.MED.LIFE.OG.ÖND.I
DROTINS.HÖND
6. L: Fengið í skiptum hjá Forngripasafninu í Reykjavík af fil.
kand. R. Arpi 23. 11. 1882. (Var nr. 350.) Samkvæmt S kom það í
Forngripasafnið 24. 9. 1866 frá Pétri Guðmundssyni bónda á Skild-
inganesi. í S upplýsir Jón Sigurðsson enn fremur: Úlfhildur Jóns-
dóttir hét kona síra Stepháns Hallkelssonar, sem var prestur í Sel-
tjarnarnes þingum 1630 —1659, og lifði hún nokkra stund eptir
mann sinn andaðan. Ef þetta væri hennar nafn, þá væri ártalið og
kannske vísan skorið síðar á keflið. (Skýrsla um forngripasafn I,
bls. 140 — 141.)
8. Afbildningar, pl. 9, fig. 44. Peasant Art, fig. 68.