Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Page 118
122
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
ÝMISLEGT
1. 6.979. Ponta (tóbaksbaukur) úr birki, töpp skrúfuð í. Tapp-
inn mjór til að stinga í stútinn, með hnapp að ofan, eins og blóm-
hnappur eða köngull. H. (þegar hún stendur) 12.5, br. 5.5, þ. um 3.
2. Fín, alveg ný og óbrúkuð, lökkuð. (í Lappkatalogen stendur:
fernisserad.) 48. mynd. ö.Á.q.
48. mynd.
3. Lágt upphleyptur útskurður á báðum hliðum og hér um
bil sama munstur: Jurtir, sem helzt minna á rósagreinar, með blöð-
um og blómum. Stönglarnir eru fínt sveigðir, blöðin samansett, að
mestu leyti af 3-5 smáblöðum með innskornum miðstreng. Flest
blómin eru útsprungin, sem rósettur, rúðustrikuð í miðjunni. Rúðu-
strikaðir hnappar koma líka fyrir. Upphækkaður, rúðustrikaður
hringur er neðan við hálsinn. Efst kringum stútinn er röð af smáum,
tungumynduðum blöðum og tveir kransar af líkum blöðum kringum
hnappinn á tappanum, sem er rúðustrikaður á toppnum. — Ljómandi
fallegt verk, en útskurðurinn virðist ekki með sérkennilega íslenzk-
um svip.