Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Síða 4
8
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
um kumlateig, og væri ekki ólíklegt, að fleira kynni að koma þar upp
við grafartektir í framtíðinni. Á þessu stigi er ekki fleira um fund-
inn að segja, nema hvað gerð skal nánari grein fyrir vopnunum
þremur, sem nú eru í Þjóðminjasafninu (1. mynd).
Spjót (Þjms. 8209), 1. nú 32,7 sm, en nokkuð vantar aftan af
falnum. Fjöðrin er 19,7 sm að 1. og 3,1 sm breið efst, beggja vegna
hryggur og slétt út af til eggjanna. Þverstýfðir gagnstæðir hnúðar
eða tappar standa út frá leggnum í sama fleti og fjöðrin, og það
er þetta einkenni, sem skilur þetta spjót frá venjulegum spjótum
af K-gerð Jans Petersens. Mér eru ekki kunn spjót með þessari
lögun frá 10. öld meðal fornleifa í öðrum löndum. 1 Kumlum
og haugfé þorði ég því ekki að fullyrða, að spjót þetta og nokkur
önnur sambærileg væru frá fornöld, en taldi þó líklegt, að svo
væri (bls. 283). Ef spjótið er jafngamalt öxinni og skjaldarból-
unni og allt saman er haugfé úr fornum kumlateig, eins og líkur
benda til, getur það ekki verið yngra en frá um 1000, og væri mikils-
vert að geta með vissu tímaákvarðað svo einkennilegt spjót.
Öxi (kom 24. 1. 1958), 24 sm frá skalla og fram á egg, 22 sm
fyrir munn, en lítið eitt er nú brotið af annarri hyrnunni, oddar
fram og aftur af auga; í auganu er bútur af axarskaftinu. öxin
er þunnslegin (sbr. Afmæliskveðju til Alexanders Jóhannessonar,
bls. 156—157), og öðrum megin á henni eru miklar fastryðgaðar
leifar af einskeftudúk. Öxi þessi er af M-gerð Jans Petersens (De
norske vikingesverd, bls. 46, mynd 45), sem hann telur meðal hinna
yngstu axa frá víkingaöld og jafnvel hafa viðgengizt fram á mið-
aldir. Af skjaldarbólunni virðist þó einsætt að tímaákvarða þessa
öxi til 10. aldar. Þegar Kuml og haugfé kom út 1956, var ekki þekkt
neitt eintak af M-gerð hér á landi (sjá um axir bls. 283 o. áfr.);
nú eru tvö til, þetta og öxi frá Kálfafelli í Fljótshverfi, sýnd á
mynd framan á kápu Árbókar 1957—1958.
SJcjaldarbóla (kom sama dag og öxin), ekki heil, en stærð og lög-
un augljós eigi að síður. Gerðin er eins og Rygh 562, eins og flestar
aðrar íslenzkar skjaldarbólur (Kuml og haugfé, bls. 289—290),
kúpt með dálitlu mitti ofan við kragann. Skjaldarbóla þessi hefur
verið 15 sm í þvermál neðst og 6 sm á hæð.