Eimreiðin - 01.01.1918, Page 13
Eimreiðin]
LOCKSLEY HÖLL
13
— Þar sem, illu heilli, hnje
í hildi tryldri faðir minn.
7$. Aðsjáll frændi illu bejtti
einstæðinginn, fóstra sinn. —
Öllum tízku fjötrum fleygja
feginn vildi’ eg austur þar,
7alla leið að ljóssins hliðum
líða’ um fríðar eyjarnar.
Þar eru stjörnur stærri’ og skærri,
stafar á haf, er máni rís,
blómsturangan undir pálmum,
austræn, broshýr Paradís.
Kaupför sjást þar erlend aldrei,
enginn vestrænn fáni’ að hún.
Yfir skóglönd fögur flýgur
fugl með söng af hamrabrún.
Undir rósum runnar svigna,
roða’ á þroskuð aldin slær,
Edens sólskins-eyjar faðmar
ástúðlega dimmblár sær. —
Mjer finst eitthvað ofurlítið
yndislegra þar en hjer —
þar sem eimskip, eimreið, gandreið
andans vit úr skorðum ber!
Þar skal ást min frjáls og fleyg
að fullu mega njóta sín:
einkadóttir dala’ og skóga
dökk mjer elur börnin mín. —
Mjúk og fim og sterk og stælt
er stökkva hátt og þreyta sund,
uppi hlaupa hind á fjalli,
henda spjótum ljettri mund