Eimreiðin - 01.01.1918, Blaðsíða 85
Eimreiðin\
í LÍFI OG DAUÐA
85
samverustunda innan dyra. Vinirnir tveir voru löngu búnir
að kjósa sér sína dótturina hvor, og voru hægt og hægt
farnir að búa sig undir áhlaup. Og vígið virtist alls ekki
vera óvinnandi. Dæturnar lásu talsvert og lánuðu bækur
í bókasafni sveitarinnar. Sigmundur og Jón skiftust k
um að sækja fvrir þær bækurnar. Alt fór fram í feg-
urstu eindrægni. þar til er Sigmundi dag nokkurn kom
fráleit hugsun i hug, og kom heim með bók handa sjálf-
um sér, án þess að hafa látið nokkuð um það vitnast
áður. pá þóttist Jón svikinn í trygðum og gerðist þögull.
En næsta sinni er skifta átti um bækur, var röðin komin
að honum og þá náði hann rétting mála sinna. þorparinn
svarni kom nú heim með d a n s k a bók — handa sjálf-
um sér. Með hana sat hann og stafaði sig áfram í henni
með erfiðismunum næstu kvöldin, en Sigmundur lá i
rúmi sinu og starði þungbúinn upp í rjáfrið. Jæja, Sig-
mundi varð ekki ráðafátt. Til þess nú að reynast ekki
miður lærður og miður útlendingslegur en vinurinn, kom
hann næsta skifti heim með enska bók, sem hann vita-
skuld skildi ekki eitt orð í, en sem hann þaullas með
öllum einkennum þess að hún væri honum afar-hugð-
næm, jafnframt og hann rak upp við og við skellihlátur,
svo eðlilegan sem frekast varð við komið. pað var bók
Herbert Spencers „Um uppeldi“. Hann las hana í þeirri
trú, að það væri áhrifamikil skáldsaga, og var mjög
ibygginn, þegar hann var spurður um efnið, — það var
nú ekki svo auðhlaupið að þvi að segja frá efninu í heilli
stórri bók, en velkomið væri að lána hana. En það voru
víst engir fleiri á bænum, sem lásu ensku. parna var hann
ofan á! pað bætti ekki vitund úr skák, að Jón reyndi að
hefna sín með því að koma heim með þýska eðlisfræði, —
hann var orðinn undir, án þess hann fengi rönd við reist.
Honum var sárgramtígeði og fanst hann vera lítilmótlegur
orðinn, og sér vera óréttur ger. pangað til hann að áliðnum
vetri var svo heppinn að komast yfir eintak — þó ekki
heilt — af latneskri málmyndalýsingu. pá gerðist Sig-
mundur skyndilega skensinn og fullur þjóðræknisanda og