Eimreiðin - 01.01.1918, Page 58
58
GUÐINN GLERAUGNA-JÓI
[Eimreiðin
ySur,“ sagði hann, þegar blótsyrðadrífan fór að þynnast aftur.
„Fjörutíu þúsund punda virði af gulli."
„Kom litli trúboðinn ekki aftur?“ spurði eg.
„Jú, jú! Blessaður verið þér! Jú, jú! Og hann lagði við dreng-
skap sinn, að það skyldi vera maður innan í guðinum, og svo
var farið að líta eftir því með fjarskalegri viðhöfn. En það var
ekki, hann fór fýluferð í annað sinn. Mér var alt af illa við allan
hávaða og rekistefnu, og hafði mig því á brott áður en til þess
kom. Eg fór til Banya, alt af fram með sjó. Eg leyndist í skóg-
inum á daginn og stal mér mat í þorpunum á nóttunni. Eg hafði
spjót að vopni. Engin föt. Enga peninga. Ekki neitt af neinu.
Andlitið var aleiga mín, sem maður svo segir. Og þarna voru
átta þúsund pund í gulli — fimti parturinn —• sýnd bráð en ekki
gefin. En negrarnir voru vist ekki góðir við trúboðann, því að þeir
kendu honum um það, að hamingjan flýði frá þeim.“
M. J. þýddi.