Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1918, Page 101

Eimreiðin - 01.01.1918, Page 101
Eimreiðin] PHOCA.S 101 Sjálfur talaði hann aldrei. Hann var þegar orðinn við aldur. Hárið var farið að grána og bakið bognaði æ meir, því fleri hríslur og kræklinga sem hann batt upp á móti sólskininu. Það(, sem hann unni mest af öllu í litla, sjálfstæða ríkinu sínu, voru blómin. Hann ræktaði ekki neitt slíkt, þvi eiginlega var jörðinni ætlað að geta af sér fæðu í svanga munna. En hér og hvar í jöðrum ræktuðu beðþnna, eða á stígunum á milli þeirra,. uru þau eftir, eins og jörðin gat þau sjálf af sér, og þar sem grýttast var, efst uppi á hólnum, þar sem hann hafði ekki enn þá komist til að ryðja, óx fjöldi af viltum blómum. Um háveturinn var þúsundfriðan eins og urmull af hvítum og róslitum stjörnum innan um fölnað grasið. Því næst kom krók- usinn með gullin blóm, eins og jarðvegurinn hefði skotið út ofur- litlum sólarlogum til þess að taka á móti stóru sólinni með. Anemónur með dúnmjúka stöngla og hnöttótt höfuð, sem fljót- lega urðu lotin af þreytu, báru hver um sig sinn sérstaka blæ af fjólulit, alt neðan frá bláu og upp að glóandi rauðu. Fíngerðu narsissurnar beygðu sig jafn kurteislega i hálsinum fyrir því, þótt þær hefðu engan spegil, hyasinturnar lituðu bikara sína, eins og lokka á fögrum ljósálfum, vatnadísum eða öðrum verum, er vér mundum ekki lengur trúa að væru til, en gætum alls ekki trúað til nokkurs ills. Og ótöluleg blóm voru þar önnur, öll jafn fögur og furðuleg. Og þegar Harpa var riðin í hlað og loftið gagnómaði af fögnuðu og brennandi óró næturgalans, þá mátti sjá í mörgum stöðum hvítar liljur og lýsti rautt gegn um æðanetið, sem varð þéttast inst inni, eins og þar væri hjartastaður blómsins. Hann gætti þess vandlega að stíga ekki ofan á neitt blómið, og þegar hann varð að fórna þeim, sem höfðu náð því að festa rætur í aldinreitunum, þá varð það ekki fyr en eftir stutta, hljóða baráttu. Og hann varð að minna sjálfan sig rækiiega á það, að allar takmarkalinur yrðu að vera beinar, áður en hann gæti fengið af sér að draga línuna með! plógblaðinu. Hann var líka ófús á að líta við, er því var lokið. En þetta var nærri hið eina ský, er skygði á hamingju hans, og honum tókst einnig að dreifa því burtu með hyggjufullu, sólhlýju brosi að sínum mannlega veik- leika.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.